Á ábyrgð stjórnvalda.

Þessi hnútur var rækilega hnýttur af stjórnvöldum og án aðstoðar nokkurra utanaðkomandi aðila. Ný stjórn hefur heldur ekki sýnt neina tilburði til að leysa þennan hnút. Ef ekki á allt að fara hér í stríðsátök á vinnumarkaði þá verða stjórnvöld að setja lög sem ógilda undanfarnar ákvarðanir Kjararáðs. Annars fara aðrir aðilar réttilega fram á sambærilegar hækkanir með jafnmikilli afturvirkni. Þetta ástand er alfarið í boði stjórnvalda. Og þá óðaverðbólgan sem fylgja mun í kjölfarið.


mbl.is „Verða að ná saman í dag“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úrskurð kjararáðs ?

Setja verkfall í salt og láta Kjararáð úrskurða, þá fá flugvirkjar væntanlega tvöfaldar þær kröfur sem þeir setja fram nú og ár afturvirkt. Svo kemur öll halarófan á eftir og að því loknu hefst grátkór embættismanna um að þeir hafi dregist aftur úr.


mbl.is „Þetta verður að nást“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úr takti við kjara(ó)ráð ?

Ef kröfur flugvirkja eru innan þess sem kjararáð hefur úthlutað elítunni þá eru þær alls ekki úr takti við neitt. Þar með eru þeir heldur ekki bara einn aðili sem er að fara fram á eitthvað óraunhæft. Embættismannahyskið er búið að fá það sem er algjörlega úr takti við allt og ráðamenn ætla alls ekki að bakka út úr því. Áður fyrr hafði ég enga samúð með flugstéttunum. Núna get ég sýnt því skilning að þeir vilji fá sambærilegar hækkanir og kjararáð hefur úthlutað vildarvinum sínum og vonandi ber verkalýðsforystunni gæfa til að ganga á eftir með sambærilegar kröfur fyrir sína umbjóðendur. Ef þeir sem hafa fengið úthlutað ofurhækkununum úr hendi kjararáðs setja lög á verkföll sem til eru komin vegna krafna um launabætur sem rúmast innan þess sem kjararáð hefur úrskurðað þá eru þeir hinir sömu búnir að mála sig algjörlega út í horn.


mbl.is Lög á deiluna koma ekki til greina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Örn Gunnlaugsson

Höfundur

Örn Gunnlaugsson
Örn Gunnlaugsson

Færsluflokkar

Des. 2017
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • ...p1011234

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 27
  • Sl. sólarhring: 58
  • Sl. viku: 290
  • Frá upphafi: 116031

Annað

  • Innlit í dag: 25
  • Innlit sl. viku: 249
  • Gestir í dag: 23
  • IP-tölur í dag: 23

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband