Ekkert atvinnuleysi.

Á Íslandi er ekkert atvinnuleysi í dag. Næg vinna er fyrir alla þá sem nenna að vinna. Það er hreint ótrúlegt að þúsundir letingja skuli komast upp með að ná út atvinnuleysisbótum meðan Austantjaldar eru fluttir inn í förmum til að vinna þau störf sem vantar fólk í. Leggjum Vinnumálastofnun niður og atvinnuleysisbætur af þar til raunverulegt atvinnuleysi grefur um sig á ný.


mbl.is Umfang bótasvika enn umtalsvert
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Það má stytta bótatímann niður í 6 mánuði á meðan ástandið er sem í dag.  Alltaf eru einhver tilvik þar sem fólk missir vinnu vegna samdráttar eða gjaldþrota - gefa má þeim tíma til þess að finna annað starf.

Kolbrún Hilmars, 26.5.2018 kl. 12:51

2 Smámynd: Örn Gunnlaugsson

Það er hægt að komast í alls konar vinnu strax, jafnvel tímabundið starf meðan fólk er að finna eitthvað sem hentar betur. Bætur eru örþrifaúrræði og öryggisnet sem ekki á að vera til staðar þegar næga vinnu er að hafa. Stytta bótatímann niður í núll eins og ástandið er núna.

Örn Gunnlaugsson, 26.5.2018 kl. 13:15

3 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Ekki sammála því, Örn.  Enginn hefur tíma fyrir atvinnuleit fyrir langtímastarf í fullri (bráðabirgða)vinnu annars staðar.  Þetta fólk hefur jú greitt tæp 7% af launum sínum skv. kjarasamningspakkanum og á rétt á smá umþóttunartíma.

Kolbrún Hilmars, 26.5.2018 kl. 15:08

4 Smámynd: Örn Gunnlaugsson

Ójú, það eru 24 tímar í sólarhringnum. Í dag er bara krafist og heimtað, fólk tuðar endalaust um réttindi sín en talar aldrei um að hafa nokkrar skyldur við samfélagið. Yfirleitt er bara auðveldara að komast í aðra vinnu sé maður í vinnu. Ekki launþegar sem greiða tryggingagjaldið, það eru launagreiðendur og ekki breytast launin neitt þó tryggingagjaldið breytist. Það er sjálfsagt að hjálpa fólki sem á ekki í önnur hús að venda en tómt rugla að framleiða vesalinga, nóg til af þeim fyrir.

Örn Gunnlaugsson, 26.5.2018 kl. 18:27

5 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Auðvitað greiða launþegar tryggingagjaldið, þótt óbeint sé.  Innifalið í kjarasamningi verkalýðsfélaganna.  Sennilega ein ástæðan fyrir því hversu illa gengur að lækka tryggingagjaldið þegar vel árar. 

Kolbrún Hilmars, 26.5.2018 kl. 20:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Örn Gunnlaugsson

Höfundur

Örn Gunnlaugsson
Örn Gunnlaugsson

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...p1011234

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 119
  • Sl. sólarhring: 237
  • Sl. viku: 562
  • Frá upphafi: 116308

Annað

  • Innlit í dag: 81
  • Innlit sl. viku: 463
  • Gestir í dag: 77
  • IP-tölur í dag: 74

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband