Costco heilkennið

Í Costco má fá ýmislegt sem vandfundið er annars staðar eins og frosna sjávarrétti sem eru þó ekkert ódyrari en þar sem þeir finnast annars staðar. Kjötmeti þar er dýrara en annars staðar og þó það líti vel út í pökkunum sem allir eru í yfirstærð hefur það oftar en ekki valdið vonbrigðum þegar þeir eru opnaðir. Ávextir og grænmeti er eitthvað sem ekki er ástæða til að eltast við þar enda jafngott eða betra að gæðum  annars staðar á jafnvel hálfu Costco verði, og hægt að kaupa það magn sem hentar. Hins vegar verður ekki tekið af Costco að hreinlætisvörur eins og salernispappír og handþurrkur eru hvergi á betra verði en þar m.v. gæði og allt í góðu að eiga slíkan varning til ársnota í skúrnum, ég tala nú ekki um fyrir þá sem glíma við mjúkar hægðir. Þá er alls kyns óþarfi á góðu verði þar, óþarfi sem maður kaupir annars ekki. Ekki má gleyma hinum glæsilegu sushi bökkum sem ekki eru bara í yfirstærð heldur bitarnir sjálfir líka, því miður er stækkunin öll í hrísgrjónunum. Verst er þó að þeir eru algjörlega bragðlausir og því engan veginn sambærilegir við það sem boðið er upp á víðast hvar annars staðar. En til er fólk sem trúir því að ALLT sé best og ódýrast í Costco. Sagt er að maður eigi ekki að skipta sér að trú og pólitískri rétthugsun annarra og megi ég því eiga skömm fyrir.


mbl.is Grænmetismarkaðurinn jafnar sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónatan Karlsson

Sæll Örn.

Ég fæ hér kjörið tækifæri til að létta af mér reiði vegna viðskipta minna við þessa umræddu verslun.

Við hjónin fórum á svona tveggja til þriggja mánaða fresti þetta fyrsta ár og líkaði ýmislegt, en urðum þó líka vör við stöðugar hækkanir, en í okkar síðustu ferð, þá kom loks að því að greiða nærri þrjátíu þúsunda reikninginn og þá líka að endurnýja kortið, en þá vildi greiðslu posinn ekki sætta sig við debetkortið, en aðvífandi yfirkona sagði okkur að við gætum bara skroppið og tekið út peninga í IKEA og þau bara geymt körfuna á meðan.

10 mínúntum síðar komum við hlaupandi með seðlana, en þá var yfirfull karfan horfin og einu svör sömu kerlingar voru: Sorry luv og að við þyrftum bara að fara aðra ferð í búðina.

Þangað förum við að sjálfsögðu ekki framar.

Jónatan Karlsson, 17.2.2019 kl. 09:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Örn Gunnlaugsson

Höfundur

Örn Gunnlaugsson
Örn Gunnlaugsson

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...p1011234

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 115749

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband