Kínín gegn malaríu.

Fyrir ca fjórum áratugum var ég í siglingum til Afríku. Til að forðast að smitast af malaríu átum við skipsfélagarnir reglulega samkvæmt læknisráði pillur sem innihéldu Kínín en það átti að hamla gegn því að veikjast af pestinni. Sá heilbrigðisstarfsmaður sem sprautaði okkur skipverja fyrir hinum ýmsu pestum sem mátti eiga von á í þessari heimsálfu þá upplýsti okkur um að Tonic water innihéldi  víst einnig kínín og gagnaðist því í þessu tilliti. Við vorum að sjálfsögðu fljótir að snúa þessum upplýsingum á þann veg að okkur bæri að drekka Tonic water samkvæmt læknisráði. Tonic water er hins vegar algjörlega ódrekkandi nema því sé blandað við annan vökva sem ég ætla ekki að auglýsa hér. Neysla okkar á Tonic water eins og við stunduðum hana olli því talsverðum aukaverkunum, misalvarlegum eftir neyslumagni en ekki er mér kunnugt um hvort þær aukaverkanir hafi verið af sama meiði og þær sem fjallað er um í fréttinni hér. Spurning hvort kínín sé virka efnið sem slær á Covid-19 og þá hvort gagnlegt væri að landinn hellti bara reglulega upp á sig með ... og Tonic?


mbl.is Hætta að nota lyfið við veirunni vegna aukaverkana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Örn Gunnlaugsson

Höfundur

Örn Gunnlaugsson
Örn Gunnlaugsson

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • ...p1011234

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 115655

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband