Samspillingin...

hefði verið nær lagi og viðbótin: ,,látum aðra splæsa,, hefði hæft.


mbl.is Breyta nafni Samfylkingarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Borg óttans.

Ég forðast í lengstu lög að leggja á mig heimsókn í borg óttans sem miðbær Reykjavíkur er svo sannarlega orðinn. Eftir að hafa ekki komið mjög lengi þangað átti ég þó erindi í verslunina Brynju sem nú er á förum enda einn af fáum stöðum sem selur eitthvað annað en það sem setja má í belginn. Túristarnir sem heimsækja þennan sóðalegasta miðbæ landsins trúa því ábyggilega að íbúarnir lifi hreinslega á því að selja hverjum öðrum kaffi og brennivín. Borgaryfirvöldum hefur sannarlega tekist að samsama miðbæinn því sem sjá mátti í Sovét fyrir fall Berlínarmúrsins. Björtu hliðarnar á þessu er að meðan æðsti strumpur er upptekinn við að standa vörð um subbulegheitin í borginni stundar hann ekki lækningar á meðan.


mbl.is Berjast um stæðin og greiða gjald
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einskis metin reynsla.

Margir eru þeir sem sverar gráður hafa og kunna allt þó stór hluti þeirra geti reyndar fátt. Það er munur á að kunna og geta en reynslan sem nú er einskis metin gerir yfirleitt gæfumuninn þó gráðubossarnir átti sig ekki á því. Ekki datt mér í hug á yngri árum að ég ætti eftir að horfa upp á að litli millifótahnoðrinn ætti eftir að verða til trafala við starfsmat. Það er hins vegar raunin í dag, hnoðrinn litli er í dag talinn draga úr starfshæfni sérstaklega þegar kemur að útdeilingu til opinberra starfa.


mbl.is Brotalöm í ráðningu í starf hafnarstjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á hann séns ?

Kemur í ljós en til þess að fá að vera með í dag verða menn að vera punglausir femínistar.


mbl.is Meðvitaður um stærð ákvörðunarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýr atvinnuvegur.

Hér hefur orðið til ný atvinnustarfsemi, innflutningur ólöglegra innflytjenda. Henni vex svo sannarlega fiskur um hrygg. Stórfjölgun í röðum þeirra sem við hana starfa sem allir taka laun frá skattgreiðendum, ljúft er að vera ríkisjötubítur. Allt í nafni mannúðar góða fólksins sem greidd er af hinum sem einhver verðmæti skapa.


mbl.is Miða við 5-600 flóttamenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hugmyndaflug ríkisjötubítanna

nær eingöngu að skattheimtu. Tilvera ríkisjötubítanna er best tryggð með endalausri skattheimtu sem stendur undir rekstri stofnanna sem þeir taka laun sín hjá. Ekki kemur fram hjá þessum ríkisjötubítum á hvaða sviðum á að draga úr skattheimtu í staðinn. Væntanlega sjá þeir bara fyrir sér að ríkisrekstrarskrímlið fái bara að bólgna enn meira út svo gefa megi enn ríkulegar á garðann. Nær væri að refsa þeim með einhverjum hætti sem eru að þvælast í umferðinni á bílum sem engan veginn eru búnir til vetraraksturs.


mbl.is Leggur til gjaldtöku vegna nagladekkja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver er maðurinn ?

Fréttin er eiginlega ekkifrétt þar sem maðurinn er ekki nafngreindur. Rétt væri líka að birta mynd af honum. Hve mikið af fyrri sektum er hann búinn að greiða upp ? Menn eru gripnir og dæmdir en dómunum er bara ekki fylgt eftir og þá er tilgangslaust að eyða púðri í þetta.


mbl.is Í fjórða skipti fyrir dóm vegna skattsvika
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Handfarangur nóg.

Það þarf nú tæplega mikið af leppum utan á sig í blíðunni þarna. Óþarfi að taka borðstofuhúgögnin og sófasettið með. Þetta er ekki svo frumstætt þarna að ekki finnist þvottavélar. Innifalinn handfarangur hjá öllum alvöru flugfélögum er yfirdrifið nóg jafnvel þó dvalist sé margar vikur.


mbl.is Ræna verðmætum úr farangri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Örn Gunnlaugsson

Höfundur

Örn Gunnlaugsson
Örn Gunnlaugsson

Færsluflokkar

Okt. 2022
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Nýjustu myndir

  • ...p1011234

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.7.): 57
  • Sl. sólarhring: 95
  • Sl. viku: 216
  • Frá upphafi: 131116

Annað

  • Innlit í dag: 55
  • Innlit sl. viku: 190
  • Gestir í dag: 52
  • IP-tölur í dag: 48

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband