9.11.2021 | 11:11
Vitnaleiðslur í kirkjugarðinum.
En hæpið að sakborningur geti varið sig þar sem hann lést fyrir hartnær hálfri öld.
![]() |
Segir Kristin E. hafa misnotað sig kynferðislega |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.11.2021 | 11:02
Á endanum
mun Skæða-Drífa og hennar ofstækissamferðarfólk innan verkalýðshreyfingarinnar fá vilja sínum framgengt og koma í veg fyrir að störf hjá þessu flugfélagi verði í framtíðinni skipuð Íslendingum sem skila sköttum til samfélagsins hér. Flugfreyjum hjá Icelandair tókst næstum því með dyggri aðstoð ASÍ að útrýma sjálfum sér og samstarfsstéttum sínum hjá sama félagi. Þau geta þakkað núverandi forstjóra Icelandair lífgjöfina fyrir að vera með bein í nefinu, nokkuð sem vantar algjörlega í nef forsvarsmanna SA. Opnun útibús í Litháen er fyrsti vísir af því að koma þessum rekstri úr landi þó ekki muni það breyta neinu um flug félagsins til og frá Íslandi. Neytandinn ræður algjörlega við hvern hann skiptir og tryggð við það sem íslenskt er fer þverrandi. Þar skiptir mestu máli hvar sambærileg þjónusta fæst fyrir minnstan peninginn. Skæða-Drífa og hennar fólk ættu að skoða söguna vel. Millilandaflug er í eðli sínu ekkert ósvipað millilandasiglingum. Fyrir nokkrum áratugum síðan var farmannastéttinni á Íslandi útrýmt vegna vitglapa og þvergirðingsháttar stjórnvalda og stéttarfélaga farmanna. Fór þar fremst í flokki Sjómannafélag Reykjavíkur sem nú heitir Sjómannafélag Íslands. Þrátt fyrir nýja nafnið eru forvígismenn þessa félags enn með hausinn fastann upp í endaþarminum á sjálfum sér þar sem hann hefur verið pikkfastur alla tíð frá því grunnurinn var lagður að útrýmingu kaupskipaútgerðar á Íslandi. Nú dettur einhverjum í hug að vísa í skip sem að nafninu til eru gerð út af Eimskip og Samskip en þá ber þess að geta að þau sigla undir færeyskum fána. Þó einhverjir Íslendingar starfi um borð í þessum skipum þá eru þeir allir í vinnu hjá færeyskum fyrirtækjum. Af tekjum áhafna þessara skipa skilar sér ekki króna til íslensks samfélags þar sem skattarnir eru greiddir í Færeyjum og endurgreiddir vinnuveitanda þeirra þar að langstærstum hluta. Starfsmenn á þessum skipum og fjölskyldur þeirra sem búa hér á landi njóta þó allrar þjónustu íslensks samfélags, s.s. menntunar, heilbrigðisþjónustu osfrv. sem skattgreiðendur hér á landi þurfa þá að greiða fyrir. Þá er rétt að benda á að íslensk stjórnvöld hafa ekkert yfir millilandaförum sem skráð eru erlendis að segja og slíkt skiptir máli komi upp krísuástand í heiminum. Til hamingju ASÍ, þið standið ykkur vel í að útrýma millilandaflugi á Íslandi og ykkur mun eflaust takast það algjörlega á endanum. Í kjölfarið mun svo samkeppnisaðilinn fylgja á eftir eigi hann að lifa af samkeppnina. Þá verður væntanleg blásið til veislu þar sem atvinnulausu flugstéttafólki verður boðið að heiðra minninngu millilandaflugs á Íslandi áður en það hrökklast til útlanda í sambærileg störf þar fyrir mun lakari kjör en það starfaði á áður hér. Eru orðuveitingar til ASÍ ekki við hæfi fyrir svona vasklega framgöngu og eftirtektarverðan árangur ?
![]() |
Laser-fókus Play í Litháen |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.11.2021 | 14:15
Í samræmi ?
Laun skrifstofufólks hjá Eflingu eru greinilega í engu samræmi við þau laun sem verkalýðsfélagið hefur samið um fyrir sína umbjóðendur á almennum markaði. En svona verða hlutirnir oft ef tekjuöflunin gerist með sjálftöku. Minnstur hluti þeirra sem neyddur er til að greiða í félagið eru félagsmenn sjálfviljugir.
![]() |
Þau skildu aldrei þessa baráttu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.11.2021 | 21:50
Solidarnosc - félagahelsi.
Ekki hafði ég hugmyndaflug þegar mest gekk á hjá Solidarnosc og Lech Walesa upp úr 1980 að láta mér detta í hug að einhvern tímann yrði opnað útibú þeirra hér á landi. Þessi samtök hér á landi sem ganga undir Eflingarnafninu hafa algjörlega snúist upp í andhverfu sína og vinna ekki aðeins félagsmönnum sínum tjón heldur öllu atvinnulífi á Íslandi. Sovéskur er stíllinn að veita engar upplýsingar til fjölmiðla. Samkvæmt þáttöku í síðustu kosningum félagsins eru sjálfviljugir félagar aðeins um 15% af félagatalinu - það kallast víst félagafrelsi en ætti með réttu að kallast félagahelsi.
![]() |
Tóku á rás undan fréttamönnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.11.2021 | 09:46
Skæða - Drífa segir NEI!
Skæða - Drífa hefur núþegar gefið út að ekki verði gerðir samningar við fjelagið. Hún telur sér stætt á því að velja sér sína viðsemjendur. Það er nokkuð sérstakt viðhorf í ljósi þess að henni þóknast ekki að vinnuveitendur velji sér viðsemjendur, samanber Play og Íslenska Flugstéttafélagið.
![]() |
Atvinnufjelagið formlega stofnað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.11.2021 | 09:41
Vissi Skæða - Drífa af ógnarstjórninni ?
Getur verið að Skæða - Drífa lumi á einhverjum nafnlausum bréfum um þennan vinnustað sem hún hefur stungið undir stól ? Hún hefur farið mikinn um meint nafnlaus bréf varðandi Play sem enginn veit í raun hvort eru frá starfsmönnum Play eða bara henni sjálfri. Ljóst má vera að þær stöllur styrkja ekki trúverðugleika verkalýðsforystunnar. Farið hefur fé betra.
![]() |
Sólveig Anna segir af sér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Örn Gunnlaugsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.7.): 24
- Sl. sólarhring: 49
- Sl. viku: 229
- Frá upphafi: 131016
Annað
- Innlit í dag: 19
- Innlit sl. viku: 191
- Gestir í dag: 18
- IP-tölur í dag: 18
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar