Halli, Palli og Bubbi.....

greiði þá úr eigin vasa upphald og framfærslu hans og allra þeirra sem þeir vilja hrúga inn í landið og geta ekki framfleytt sér.


mbl.is Skora á flugfélög að neita að flytja Yazan úr landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er eitthvað frítt ?

Þetta vinstra lið, ekki nóg með að vera með öfugan skrúfgang heldur er öllu líka snúið á hvolf. Þeir eru býsna margir sem halda að eitthvað sé frítt en svo er bara alls ekki. Þetta kallast á góðri Íslensku að láta aðra borga fyrir sig. Nú er karlgreyið (eða kerlingin) að reyna að kaupa sér atkvæði með smokkum. Hvað verður það næst hjá honum/henni ?....unaðsvörur ástarlífsins ?


mbl.is Vilja gera getnaðarvarnir fríar fyrir ungt fólk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fáir þora.

Hér vilja sjálfsagt margir styðja Helga en þora ekki að taka skrefið af hættu við að verða fyrir aðkasti minnihlutaskrílsins sem vill flytja inn alls kyns ómenningu og viðbjóð sem á ekkert erindi inn í okkar samfélag. Ég hvet samt sem flesta til að setja sig á listann, mig er að finna þar.


mbl.is Undirskriftalisti settur á fót til stuðnings Helga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eigið frjálslyndi.

Nýtur hann ekki eigin frjálslyndis á því sviði sem honum hentar? Menn verða nú að vera samkvæmir sjálfum sér.


mbl.is „Ætlum ekki að leyfa frjálshyggjunni að sigra“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

1. farrými vs. 3. farrými.

Hann siglir enn um á Gullfossi á 1. farrými þrátt fyrir að vera búinn að setja borgina í þrot. 3. farrýmisfarþegarnir hafa verið færðir enn neðar og deila nú vistarverum með kjölsvíninu. Þeim er samt ætlað að borga sukkið fyrir orlofskónginn.


mbl.is Tíu milljónir í orlofsgreiðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lög um gjaldmiðil Íslands og lög um Seðlabanka Íslands.

1. og 3 grein laga nr. 22, 23. apríl 1968 kveður skýrt á um að seðlar og mynt sem Seðlabanki Íslands gefur út í íslenskum krónum skulu vera lögeyrir í allar greiðslur hér á landi með fullu ákvæðisverði. 6. grein sömu laga kveður á um að eigi séu aðrir en bankar og sparisjóðir skyldugir til að taka við greiðslu í einu á meira en 500 krónum í slegnum peningum. 17. grein laga nr. 92, 1. júlí 2019 tekur af öll tvímæli um að seðlar og mynt sem Seðlabankinn gefur út skulu vera lögeyrir til allra greiðslna með fullu ákvæðisverði. Af ofangreindum tvennum lögum verður ekki annað ráðið en að skylt sé að taka við seðlum og mynt í íslenskum krónum í öllum viðskiptum hér á landi með þeirri undantekningu sem vísar í upphæð sleginnar myntar hverju sinni. Seðlabanki Íslands eða starfsmenn hans eru ekki til þess bærir að veita nokkrum aðilum heimild til að sniðganga þessi lög eða önnur. Sjálfsagt má finna skýringu á svari starfsmanna Seðlabankans í að lesskilningi landsmanna fer ört hrakandi og þrátt fyrir sverar gráður sem margt þetta fólk hefur aflað sér árum saman á sitjandanum þá skilur það ekki einfaldan texta eins og finna má í þeim tvennu lögum sem hér er vísað til. Túlkun Seðlabankans er því af sama meiði og hjá þeim sem telja sér heimilt að aka gegn rauðu ljósi þó skýrt sé kveðið á um í umferðarlögum að slíkt sé bannað. Þeim sem neita að taka við reiðufé þarf einfaldlega að stefna fyrir dóm í von um að lesskilningur dómara sé ekki jafndapur og starfsmanna Seðlabankans. 


mbl.is Ráða hvort tekið sé við reiðufé
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þennan þarf að hækka í tign og veita aukin völd.

Útlitið hefur hann ekki með sér en innrætið er augljóslega fallegt og greinilega sterk réttlætiskennd. Sagt hefur verið um suma að vera með skuggalegri mönnum en útlitið þó innrætinu skárra. Hér er þessu öfugt farið. Ef dugur er í dómsmálaráðherra setur hún Sigríði af og skipar Helga ríkissaksóknara. Svo þarf að koma í gildi lögum sem gerir það skylt að hreinsa þjóðfélagið af þeirri óværu sem flæðir stjórnlaust inn í landið. Ég vil meina að almennt séð fyrirlítur það fólk sem kemur frá skuggalegustu skúmaskotum miðausturlanda þar sem ártalið vísar í myrkustu miðaldir okkar menningu og siði. Þetta fólk virðir almennt ekkert af því sem okkur á vesturlöndum er eðlislægt og telur sjálfsagt að leggjast á jötuna hjá skattgreiðendum hér. Best er á því að það haldi sig bara heima hjá sér og þeir sem vilja leggja því lið geta þá bara flutt út til þeirra og notið þar þeirrar virðingar sem það verðskuldar. Við þurfum hins vegar fleiri eins og Helga í embættismannakerfið. Vonandi velur dómsmálaráðherra rétt. En allt fólk með ríka réttlætiskennd styður augljóslega Helga í þessu máli.


mbl.is Helgi: „Er klárlega mannlegur. Kannski um of“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Örn Gunnlaugsson

Höfundur

Örn Gunnlaugsson
Örn Gunnlaugsson

Færsluflokkar

Ágúst 2024
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Nýjustu myndir

  • ...p1011234

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.1.): 79
  • Sl. sólarhring: 79
  • Sl. viku: 95
  • Frá upphafi: 127881

Annað

  • Innlit í dag: 61
  • Innlit sl. viku: 77
  • Gestir í dag: 55
  • IP-tölur í dag: 55

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband