6.10.2018 | 17:58
Félagi Napóleon.
Það er þekkt í mannkynsögunni að þegar bjarga á hinum kúguðu undan okinu þá eru þeir sem taka við stjórninni síst skárri. Þegar nýlenduherrarnir gáfu eftir þau lönd sem nú eru undir stjórn innfæddra í Afríku þá færði það íbúunum bjarta von en lífskjörin versnuðu. Stéttarfélög samtímans eru tímaskekkja. Félagsaðild er þröngvað upp á alla en stéttarfélögin gera lítið fyrir þá sem halda forystufólkinu í vellystingum. Á milli 25 - 30.000 manns er haldið í þrælafjötrum undir forystu verkalýsforystunnar. Óþarft er að hafa mikinn orðaflaum um þetta - allir sem hafa áhuga á að vita hvernig þessu er háttað taki sér bók í hönd sem heitir Animal Farm, í íslenskri þýðingu Félagi Napóleon.
![]() |
Mikil átök á skrifstofu Eflingar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.10.2018 | 16:00
Menntun ein og sér gagnslaus.
Auðvitað finnst Ólínu fram hjá sér gengið enda sér hún hlutina í öðru ljósi en flestir aðrir og ber frekjuna utan á sér. Það er eftir því tekið hve margir tala hvað fólk eigi að vera merkilegt eftir því hve sprenglært það er á rassinn. Slagorð einnar sem stakk af frá störfum sínum á Alþingi á fullum biðlaunum og starfar nú fyrir BHM er: "Metum menntun til launa". Margt af þessu fólki gerir ekkert gagn og þvælist jafnvel fyrir. Það ætti miklu frekar að greiða fólki í samræmi við þau verðmæti sem vinna þeirra skilar. En þá væri margur embættismaðurinn nú tæplega matvinnungur.
![]() |
Einar ráðinn þjóðgarðsvörður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.10.2018 | 15:51
Með hnút eða slaufu ?
Hvernig er skilorðsbundið fangelsi ? Er það með hnút eða slaufu? Skrifaði illa máli farinn Austantjaldur þessa frétt?
![]() |
Lögreglumaður í skilorðsbundið fangelsi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 6. október 2018
Um bloggið
Örn Gunnlaugsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.5.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 25
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 22
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar