13.4.2019 | 10:07
Verður gefin út reikningur? - Vært sefur skattmann!
Við sama heygarðshornið þeir halda sig. Flugliðar fá og hafa fengið stóran hluta launa sinna falinn í formi dagpeninga sem eru svo sviknir undan tekjuskatti. Voru greidd aðflutningsgjöld af þessu dóti? Á að hafa þetta á svipuðum nótum og selja þennan varning undir borðið? Þegar greiðsla er skilyrt í reiðufé þá læðist að manni sá grunur þar sem ekki er minnst á að sölukerfi sé til staðar. En það er svo sem ekki undarlegt að þetta fólk telji sig undanþegið skattalögum. Heppilegt að halda þennan markað um helgi. Skattmann er farinn örþreyttur í helgarfrí klukkan 1400 á föstudegi eftir langa og stranga vinnuviku svo lítil hætta á að hann reki inn nefið. Kannski verða þeir sem versla að vera með USD í ljósi þess að í vélunum var allt verðlagt í USD þrátt fyrir að vélarnar væru skráðar á Íslandi þar sem lögeyrir er ISK.
![]() |
Markaður WOW-liða opnaður í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 13. apríl 2019
Um bloggið
Örn Gunnlaugsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.5.): 0
- Sl. sólarhring: 82
- Sl. viku: 278
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 226
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar