22.5.2019 | 12:39
Rassvasabókhald Isavia - Sniðugt á Íslandi.
Nú hefur Isavia upplýst að bókhald þeirra hafi verið í óreiðu og þeir viti almennt ekki fyrir hvað þeir eru að rukka. En hafa samt sérgreint gjaldalið fyrir hjólastólaaðgengi sem hlýtur að tilheyra rekstraraðilanum WOW en ekki eiganda eins loftfars. Þetta er álíka og að sveitarfélag gengi gegn einum fasteignaeiganda vegna gjalda af tuttugu faateignum en gæti ekki skilgreint hvaða gjöld tilheyrðu hverri fasteign. Ég segi nú bara eins og Spaugstofan forðum: "Sniðugt á Íslandi".
![]() |
Skuldir ekki flokkaðar eftir loftförum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.5.2019 | 10:21
Engir nýjir bílstjórar ?
Fréttir af því þegar nýir bílstjórar hafa verið ráðnir til fyrirtækisins hafa farið algjörlega fram hjá mér. Það væri nú aldeilis fréttnæmt ef Gummi Fellibylur eða Atli Sólarhringur, já eða einhverjir af svipuðu kaliberi væru að koma til starfa hjá fyrirtækinu í að aka bílunum sem ber nú starfsemiona uppi. Hámenntaðir sem sinna jaðarstörfunum, eins og markaðsstjórn, fjármálastjórn osfrv. hjá fyrirtækjum landsins hafa lengi vaðið í þeirri villu að þeir séu nafli rekstursins og þá er mikið gert úr þegar nýr slíkur nafli bætist í hópinn. Án bílstjóranna hefðu þessir aðilar lítið að sýsla.
![]() |
Frá Wow til Kynnisferða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 22. maí 2019
Um bloggið
Örn Gunnlaugsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.5.): 67
- Sl. sólarhring: 133
- Sl. viku: 255
- Frá upphafi: 129855
Annað
- Innlit í dag: 49
- Innlit sl. viku: 208
- Gestir í dag: 46
- IP-tölur í dag: 46
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar