Mun Benjamín Asni fara í sóttkví?

Æðstu ráðamenn sem sett hafa almenningi reglurnar varðandi sóttvarnir hafa sýnt sjálfir í verki að ekki sé ástæða til að virða þær, reglurnar eru para upp á punt. Forsætisráðherra í faðmlögum úti á landi og Fjármálaráðherrann í svallveislu í bænum og ekki má gleyma ráðherrapartýinu á Rangá fyrr á árinu. Ef grannt er skoðað virðast fæstir í ANIMAL FARM á Auturvelli taka reglurnar alvarlega. Þau tala þó flest eins og þau hafi aldrei heyrt lag og texta Magga Eiríks, Ómissandi Fólk en þau hefðu þó fullt tilefni til þess að hlusta einbeitt og sérstaklega vel eftir textanum. Er einhver að láta sér detta í hug að BENJAMÍN ASNI ætli að virða sóttkví þegar hann kemur heim frá útlöndum eftir áramótin, hvort sem hann þykist með því að fara í sýnatöku eða ekki ? Jafnvel ALGJÖRIR ASNAR láta ekki gabba sig tvisvar með sama platinu! Ég er einn af þeim sem hef látið hafa mig að algjöru fífli af þessu fólki, 14 daga sóttkví í mars og 5 dagar í desember, tók það eins alvarlega og ég væri bráðsmitandi af Svartadauða og Ebóla, sem ég var reyndar ekki.


mbl.is „Hvorki svartsýnn né bjartsýnn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 26. desember 2020

Um bloggið

Örn Gunnlaugsson

Höfundur

Örn Gunnlaugsson
Örn Gunnlaugsson

Færsluflokkar

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • ...p1011234

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.7.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 127
  • Frá upphafi: 130907

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 104
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband