15.4.2020 | 10:45
Greindarskertir laganna smiðir.
Lógin um hlutabótaleiðina og tilurð þeirra er skýrt dæmi um hæfni þess fólks sem situr á Alþingi. Dettur einhverjum í hug að þetta sé eina kjánabullið sem framleitt hefur verið þarna? Því fleiri sverari afturendagráður, þ.m.t. lögfræðigráður sem sitja þarna þeim mun vitlausari verður afurðin sem kemur þarna út. Hvers vegna var ekki beðið með að láta stuðning sem tryggt gæti ráðningarsamband taka gildi þar til uppsagnarfresti hefði lokið almennt hefði fólki verið sagt upp annars, eða í þrjá mánuði ? Og hvers vegna að binda þann stuðning við minnkað starfshlutfall ? Samtök Atvinnulífsins gera sér augljóslega grein fyrir hve grunnt er í gáfum þeirra sem ráða yfir peningadreifara ríkissjóðs / skattgreiðenda og glöggt má sjá í viðtali við glaðhlakkalegan framkvæmdastjóra SA vegna málsins líkindi með honum og Láka bak við hurð. Ég er ekki frá því að eyrun á honum hafi lengst en sá ekki hvort honum hafi vaxið hali. Það þarf að afturkalla þessi lög tafarlaust og með réttu afturvirkt með fullri kröfu um endurgreiðslu frá launagreiðendum. Þessi lög eru skýr vitnisburður um greindarskerðingu þeirra sem lögin smíðuðu og samþykktu. Lesa þingmennirnir ekkert yfir áður en þeir greiða atkvæði ? .... Bara úllen, dúllen doff hvort það er já eða nei? Skiptir ekki máli, þetta er annarra manna fé!
![]() |
Halda fólki í 100% starfi en ríkið greiðir 75% |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 15. apríl 2020
Um bloggið
Örn Gunnlaugsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.6.): 14
- Sl. sólarhring: 48
- Sl. viku: 127
- Frá upphafi: 130899
Annað
- Innlit í dag: 12
- Innlit sl. viku: 105
- Gestir í dag: 12
- IP-tölur í dag: 12
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar