17.4.2020 | 12:27
Framboð og eftirspurn eldtraustra skápa!.
Innlánsvextir eru orðnir svo lágir að það er orðið umhugsunarefni hvort það sé áhættunnar virði að geyma sparifé umfram það sem tryggt er með innistæðutryggingu í bankanum. Kannski er sá tíma að renna upp á ný að fólk fjárfesti í eldtraustum skápum til að eiga sitt í reiðufé. Á dæmigerðum óbundnum óverðtryggðum reikningi eru bankarnir að greiða 0,05% vexti á sama tíma og yfirdráttarvextir á slíkum reikningi er 9,5%. Þannig er bankinn með 19 þúsund prósent vexti á fé sam hann höndlar með í umboði sparifjáreigenda en því til viðbótar getur hann lánað sömu krónuna oft út. Ef bankinn ætlar að greiða 10 ma arð út núna þá hlýtur að verða gert áhlaup á bankann af sparifjáreigendum. Við skulum hafa í huga að 2008 fóru allir bankarnir á hausinn þrátt fyrir að helstu hagspekúlantar landsins, þmt. Hrungeir á Svörtuloftum sungu korteri í hrun að allt væri í blóma og engin hætta á ferðum, enda bera þessir aðilar enga ábyrgð á sínum herðum.
![]() |
Vilja að hætt verði við 10 milljarða arðgreiðslu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Bloggfærslur 17. apríl 2020
Um bloggið
Örn Gunnlaugsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.6.): 15
- Sl. sólarhring: 44
- Sl. viku: 128
- Frá upphafi: 130900
Annað
- Innlit í dag: 13
- Innlit sl. viku: 106
- Gestir í dag: 13
- IP-tölur í dag: 13
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar