14.5.2020 | 14:24
ASÍ taki félagið yfir.
ASÍ og aðildarfélög þess telja greinilega að Icelandair sé vel samkeppnishæft og rekstrarfært með óbreyttum kjarasamningum við flugfólkið. Allt sem stjórn Icelandair gerir til að bjarga félaginu frá gjaldþroti er gagnrýnt af verkalýðsforystunni og baulað niður. Liggur þá ekki beinast við að aðildarfélög ASÍ nýti bólgna verkfallssjóði sína til að koma félaginu til bjargar og taki alfarið yfir stjórn þess ? Það er amk. algjörlega galið að lífeyrisþegar eða aðrir skattgreiðendur fari að borga með rekstrinum til að koma ferðamönnum til landsins.
![]() |
Alvarlegar athugasemdir gerðar við bréf Boga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.5.2020 | 12:19
Má ekki?
Hvers vegna er ekki rétt að upplýsa launamenn milliliðalaust um stöðuna sem er að flugfélagið verður ekki samkeppnisfært nema stéttarfélög flugfólksins sleppi hreðjatakinu sem það hefur á flugfélaginu ? Eru 30 ma í stofnkostnað á nýju flugfélagi meira virði en til að viðhalda lönguvitleysunni hjá félagi sem verður í áframhaldandi taprekstri ef vankantarnir verða ekki sniðnir af? Kannski verða stéttarfélög flugfólksins eins konar saumaklúbbar þegar búið verður að kafsigla félagið, Félög primadonna og prinsessa ? Og allir áríkisjötunni.
![]() |
Ekki okkar mat að loforð hafi verið svikin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 14. maí 2020
Um bloggið
Örn Gunnlaugsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.6.): 15
- Sl. sólarhring: 30
- Sl. viku: 128
- Frá upphafi: 130900
Annað
- Innlit í dag: 13
- Innlit sl. viku: 106
- Gestir í dag: 13
- IP-tölur í dag: 13
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar