9.11.2021 | 20:17
Prófið að skilja eftir skilaboð.........
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.11.2021 | 13:37
ASÍ eru stórhættuleg samfélaginu.
Samtökin vinna ótrauð að því að öllu millilandaflugi verði flaggað út frá Íslandi og gera þar með þá sem vinna í flugbransanum hér atvinnulausa. Þeim mun alveg örugglega takast ætlunarverk sitt og er þeim greinilega að takast að ýta Play til Litháen. Millilandasiglingunum var flaggað út fyrir tugum ára og nú starfar enginn farmaður á íslensku kaupskipi í millilandasiglingum. .....vegna þess að íslensku skipin eru öll farin. Skipin sigla eftir sem áður milli Íslands og útlanda, bara ekki undir íslenskum fána og aðeins örfá með íslenskar áhafnir sem reyndar greiða ekki skatta til Íslands. Næstu flug mín eru bókuð með Neos, Play og Easy Jet. Hvers vegna skyldi það vera ?
![]() |
Play er stórhættulegt fyrirtæki segir Drífa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.11.2021 | 11:11
Vitnaleiðslur í kirkjugarðinum.
En hæpið að sakborningur geti varið sig þar sem hann lést fyrir hartnær hálfri öld.
![]() |
Segir Kristin E. hafa misnotað sig kynferðislega |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.11.2021 | 11:02
Á endanum
mun Skæða-Drífa og hennar ofstækissamferðarfólk innan verkalýðshreyfingarinnar fá vilja sínum framgengt og koma í veg fyrir að störf hjá þessu flugfélagi verði í framtíðinni skipuð Íslendingum sem skila sköttum til samfélagsins hér. Flugfreyjum hjá Icelandair tókst næstum því með dyggri aðstoð ASÍ að útrýma sjálfum sér og samstarfsstéttum sínum hjá sama félagi. Þau geta þakkað núverandi forstjóra Icelandair lífgjöfina fyrir að vera með bein í nefinu, nokkuð sem vantar algjörlega í nef forsvarsmanna SA. Opnun útibús í Litháen er fyrsti vísir af því að koma þessum rekstri úr landi þó ekki muni það breyta neinu um flug félagsins til og frá Íslandi. Neytandinn ræður algjörlega við hvern hann skiptir og tryggð við það sem íslenskt er fer þverrandi. Þar skiptir mestu máli hvar sambærileg þjónusta fæst fyrir minnstan peninginn. Skæða-Drífa og hennar fólk ættu að skoða söguna vel. Millilandaflug er í eðli sínu ekkert ósvipað millilandasiglingum. Fyrir nokkrum áratugum síðan var farmannastéttinni á Íslandi útrýmt vegna vitglapa og þvergirðingsháttar stjórnvalda og stéttarfélaga farmanna. Fór þar fremst í flokki Sjómannafélag Reykjavíkur sem nú heitir Sjómannafélag Íslands. Þrátt fyrir nýja nafnið eru forvígismenn þessa félags enn með hausinn fastann upp í endaþarminum á sjálfum sér þar sem hann hefur verið pikkfastur alla tíð frá því grunnurinn var lagður að útrýmingu kaupskipaútgerðar á Íslandi. Nú dettur einhverjum í hug að vísa í skip sem að nafninu til eru gerð út af Eimskip og Samskip en þá ber þess að geta að þau sigla undir færeyskum fána. Þó einhverjir Íslendingar starfi um borð í þessum skipum þá eru þeir allir í vinnu hjá færeyskum fyrirtækjum. Af tekjum áhafna þessara skipa skilar sér ekki króna til íslensks samfélags þar sem skattarnir eru greiddir í Færeyjum og endurgreiddir vinnuveitanda þeirra þar að langstærstum hluta. Starfsmenn á þessum skipum og fjölskyldur þeirra sem búa hér á landi njóta þó allrar þjónustu íslensks samfélags, s.s. menntunar, heilbrigðisþjónustu osfrv. sem skattgreiðendur hér á landi þurfa þá að greiða fyrir. Þá er rétt að benda á að íslensk stjórnvöld hafa ekkert yfir millilandaförum sem skráð eru erlendis að segja og slíkt skiptir máli komi upp krísuástand í heiminum. Til hamingju ASÍ, þið standið ykkur vel í að útrýma millilandaflugi á Íslandi og ykkur mun eflaust takast það algjörlega á endanum. Í kjölfarið mun svo samkeppnisaðilinn fylgja á eftir eigi hann að lifa af samkeppnina. Þá verður væntanleg blásið til veislu þar sem atvinnulausu flugstéttafólki verður boðið að heiðra minninngu millilandaflugs á Íslandi áður en það hrökklast til útlanda í sambærileg störf þar fyrir mun lakari kjör en það starfaði á áður hér. Eru orðuveitingar til ASÍ ekki við hæfi fyrir svona vasklega framgöngu og eftirtektarverðan árangur ?
![]() |
Laser-fókus Play í Litháen |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 9. nóvember 2021
Um bloggið
Örn Gunnlaugsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.7.): 24
- Sl. sólarhring: 48
- Sl. viku: 229
- Frá upphafi: 131016
Annað
- Innlit í dag: 19
- Innlit sl. viku: 191
- Gestir í dag: 18
- IP-tölur í dag: 18
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar