Ekki sakaferill að baki ?

Þetta lýsir í hnotskurn hvernig ríkisjötustarfsmenn hegða sér. Þessir tveir menn sem hér um ræðir hafa um áratugaskeið stolið frá samborgurum sínum gegnum virðisaukaskatt og staðgreiðsluskatta en fyrst núna nappaðir. Þeir eru búnir að reka fjölda fyrirtækja í þrot og skilja ávallt eftir sig sviðna jörð. Yfirvöld eru steinsofandi og taka ekki við sér fyrr en samkeppnisaðilunum hefur blætt út. Síðustu tvö fyrirtækin á undan hétu líka Aflbinding en nöfnum þeirra var breytt í Þolandinn ehf. og Eitthvað annað ehf. rétt fyrir þrot. Og það eru ekki einu fyrirtækin sem fuðruðu upp. Vill ekki enhver fréttamiðilinn kanna fortíð þessara aðila ? Yfirvöld eru steinsofandi og meðan skúrkar sem þessir fá að starfa með svindli og þjófnaði þá blæðir hinum út sem eru að reyna að vera heiðarlegir. Stóru byggingafayrirtækin nýta sér þetta og ráða þessa undirboðsskúrka sem undirverktaka vitandi það hvernig í pottinn er búið. Nú þegar þessir glæponar eru loksins nappaðir þá eru þeir verðlaunaðir með dvöl á Hótel Hólmsheiði þar sem allt er innifalið í boði skattgreiðenda. 360 daga fangelsisdómur sem þýðir innan við 180 dagar á lúxushótelinu fyrir 70 milljóna sekt. Hvar annars staðar hefur maður þessi laun skattfrjálst ? Gott er líka að hafa dóminn skilorðsbundinn svo hægt sé að halda glæpastarfseminni áfram, allt í boði skattgreiðenda en þessir menn eru sannanlega ekki skattgreiðendur.


mbl.is 136 milljónir í sekt fyrir meiriháttar brot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sniðgöngum þjóðhátíð.

Ef ákæruvaldið stæði í lappirnar myndi það birta öllum þessum Ku Klux Klan nornum ákæru fyrir ásakanir og dylgjur sem ekki virðast liggja neinar sannanir fyrir og ekki stendur til að koma með neinn rökstuðning fyrir. Er ekki orðið tímabært að yfirvöld grípi inn í og stöðvi þessar nornaveiðar? Er það bara orðið í lagi að bera fólk þungum sökum án þess að þurfa að leggja fram nokkrar sannanir fyrir þessum ásökunum ? Er þá ekki bara rétt að leggja réttarkerfið niður í heild sinni og taka upp aðferðir klerkanna í Íran ? Þá mun frumskógarlögmálið gilda og hverjum sem er verður heimilt að hengja hvern sem honum sýnist án nokkurra eftirmála fyrir þann sem slíkan verknað framkvæmir. Þeir sem annt um réttlæti ættu að sniðganga þjóðhátíð í ljósi þessarra fregna og þeir sem keypt hafa sig inn á hana ættu að krefjast endurgreiðslu. Það verður sjálfsagt nóg af bældum femínistum með óbilandi minnimáttarkend sem vilja sækja hátíðina, kannski rétt að þessi hátið verði svo í framhaldi kölluð Femíniska Nornahátíðin í Vestmannaeyjum. Snýst þetta kannski bara um að brekkusöngstjórinn sé með réttu tólin á milli lappanna ? Ljóst má vera að ekki sæki ég svona hátíð sem greinilega er stjórnað af ofstækisfólki. 


mbl.is Ingó mun ekki stýra brekkusöngnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 5. júlí 2021

Um bloggið

Örn Gunnlaugsson

Höfundur

Örn Gunnlaugsson
Örn Gunnlaugsson

Færsluflokkar

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • ...p1011234

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.7.): 61
  • Sl. sólarhring: 61
  • Sl. viku: 188
  • Frá upphafi: 130975

Annað

  • Innlit í dag: 53
  • Innlit sl. viku: 158
  • Gestir í dag: 51
  • IP-tölur í dag: 51

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband