3.5.2010 | 10:57
Í gæsluvarðhald!
Allt sem yfirvöld gera eða öllu heldur gera ekki er til þess fallið að tryggja að enginn af þessum glæpamönnum verði lokaður inni. Hvort sem aðstoð svona reynslubolta verður þegin eða ekki er lágmark að halda bankaræningjunum og þeirra þjófsnautum í gæsluvarðhaldi þar til búið er að upplýsa málin og hafa uppi á ránsfengnum. Það getur líka flýtt rannsókninni verulega og gert bankaræningjana samvinnufúsari. Það eru augljósir rannsóknarhagsmunir í húfi að hafa þennan lýð í einangrun þar til þeir hefja hina eiginlegu afplánun í kjölfar þeirra dóma sem þeir verðskulda. En það er lítil von til að eitthvað gerist í þessum málum meðan smáglæpir hafa forgang í kerfinu. Þarf ekki almenningur bara að taka sig saman og sækja þessa krimma til London og Sviss og annars staðar þar sem þeir hafa komið sér í skjól? Glæpamennirnir verða þá væntanlega fljótir að óska sér þess að sitja í gæsluvarðhaldi - eigin öryggis vegna.
Aðstoðar Black ekki óskað sem sakir standa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Örn Gunnlaugsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 12
- Sl. sólarhring: 97
- Sl. viku: 124
- Frá upphafi: 125328
Annað
- Innlit í dag: 9
- Innlit sl. viku: 92
- Gestir í dag: 9
- IP-tölur í dag: 9
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.