4.1.2011 | 17:05
Hvar eru yfirvöld?
Af hverju eru yfirvöld ekki búin að láta loka þessari sjoppu fyrir löngu síðan? Hálft ár er frá því að Hæstiréttur staðfesti að stjórnendur þessa fyrirtækis brutu lög en samt hefur engum þeirra enn verið birt ákæra. Í skjóli þess halda fyrrnefndir stjórnendur enn áfram að níðast á fyrrum viðskiptamönnum sínum enda fá þeir að gera það óáreittir. Það á náttúrlega að vera búið að læsa allt þetta hyski inni og henda lyklunum. Hér er til fjármálaeftirlit, ríkislögreglustjóri, ríkissaksóknari, sérstakur saksóknari og hvað þetta allt heitir, en allt er þetta hvert öðru geldara þegar kemur að þessum hlutum. Og ekki gerir hin norræna velferðarstjórn "lítilmagnans" neinar athugasemdir við andvaraleysi fyrrnefndra embætta. Þvert á móti standa stjórnvöld með skúrkunum í viðleitni sinni til að ræna hinn almenna borgara aleigunni.
Lýsing ber ábyrgð á mistökum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Örn Gunnlaugsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 73
- Sl. sólarhring: 73
- Sl. viku: 107
- Frá upphafi: 125304
Annað
- Innlit í dag: 57
- Innlit sl. viku: 84
- Gestir í dag: 53
- IP-tölur í dag: 53
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Yfirvöld eru önnum kafin að hækka skatta og aðrar álögur á þjóðina.....
Þeim virðist alveg sama þótt fyrirtæki svindli á okkur...bara betra sennilega...
Birgir Örn Guðjónsson, 4.1.2011 kl. 17:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.