1.7.2011 | 08:14
Helkaldur vetur framundan.
Síðasti vetur var kaldur í þessum bransa en næsti vetur verður botnfrosinn. Það liggur fyrir að ekkert mun fara að síga upp á við í efnahagslífinu fyrr en búð verður að koma komma- og samspillingarliðinu frá en því miður verður það sennilega ekki fyrr en 2013 í næstu kosningum. Sjái maður steypubíl á ferðinni í dag vekur slíkt mikla eftirtekt og byggingakranar eru að verða álíka sjaldséðir og hvítir hrafnar.Svo er verið að birta tölur um fjölda kaupsamninga á fasteignamarkaði og það bendi til að fasteignamarkaðurinn sé að taka við sér. Það þarf engan snilling til að sjá að þetta er ekki rétt. Til að sýna rétta mynd af þessu þarf að skilgreina að hve miklu marki bankarnir eru að hirða eignir og hve margir kaupsamningar standa á bak við ein raunveruleg viðskipti þ.e. makaskipti en þá kemur í ljós hið raunverulega ástand á þessum markaði. Og hin heimskulega svokallaða 110% leið sem þýðir að fólk á minna en ekkert í húsunum sem það býr í er aðeins til þess fallin að fólk heldur þeim ekki við - málar ekki einu sinni, svona almennt séð.
![]() |
Botninum ekki náð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Örn Gunnlaugsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.6.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 19
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 18
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.