1.1.2020 | 15:40
Blómaskreyting úr polyester.
Ekki ætla ég að hafa frammi skoðanir mínar á því hvort þessi forseti sé betri eða verri en aðrir sem verið hafa. Hins vegar hefur sagan sýnt að þetta er algjörlega máttlaust embætti sem er aðeins til kostnaðarauka fyrir skattgreiðendur. Undantekningin er þegar Ólafur Ragnar var og beitti sér gegn landráðaliðinu vegna Icesave (ekki var ég þó haldinn stjórnlausri hrifningu á honum). Til að réttlæta þetta embætti þarf að veita því raunveruleg völd til að sópa út úr spillingarbælinu við Austurvöll en þar virðist spillingin í samfélaginu vera hvað svæsnust. Og til að vel megi vera þarf að breyta fyrirkomulagi á kjöri þannig að ef margir eru í framboði þá endi það á kjöri milli tveggja efstu þannig að sá sem er kjörinn sé með meira en helming greiddra atkvæða. Hvað ef þeir sem kusu hina og dreifðu þeim 62% atkvæða sem stóðu hinu megin hafi gert það þar sem þeir vildu alls ekki sjá þann í embætti sem hlaut 38%. Alltaf að enda með að kjósa á milli tveggja efstu og þá fæst raunhæf niðurstaða. En eins og embættið er núna skiptir engu máli hver lyddan er, alveg eins hægt að hafa bara blómaskreytingu úr polyester í Hljómskálanum.
Guðni gefur kost á sér til endurkjörs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Örn Gunnlaugsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 91
- Sl. sólarhring: 162
- Sl. viku: 203
- Frá upphafi: 125407
Annað
- Innlit í dag: 74
- Innlit sl. viku: 157
- Gestir í dag: 72
- IP-tölur í dag: 72
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.