1.4.2020 | 11:49
Nammibúðin Ríkissjóður.
Allt í einu er Ríkissjóður orðin að stærstu nammibúð í heimi. Maður gæti haldið að þar sé viðvarandi plássleysi en alls enginn skortur á fé. Allt í einu virkar ríkissjóður eins og skítadreifari nema hann dreifir bara peningum eins og enginn sé morgundagurinn, en það styttist kannski í þann dag þó almenningur hafi ekki verið upplýstur um slíkt. Allir fá eitthvað út á Covid-19 jafnvel þótt þeir hefðu ekki fengið neitt annars. Fyrir marga er þetta eins og græða á að lenda í áföllum og fá greiddar tryggingabætur umfram það sem þeir hefðu fengið án áfalla. Ríkisstjórnin stökk til og ákvað að greiða bætur fyrir minnkað starfshlutfall afturvirkt frá 15. mars. Eins og sjá má henda sér nánast allir á vagninn og nýta sér þetta úrræði þó engin efni séu til þess. Fyrirtæki í ferðaþjónustu sem ættu aldeilis að hafa átt tök á að leggja fyrir í gósentíð síðustu ára virðast vera galtóm og blönk. Það er alveg sama hvernig árar hjá ferðaþjónustufyrirtækjum. Þegar allt er í blússandi bisness og uppgangi þá grenja þau yfir því að þurfa að leggja til samfélagsins á sama hátt og aðrir rekstraraðilar þurfa að gera, ekkert má rukka ferðamanninn um neitt umfram það sem rennur í vasa ferðaþjónustufyrirtækjanna. Þegar harðnar í ári grenja þessir sömu aðilar enn hærra og vilja komast á jötuna hjá ríkissjóði og launþegasamtökin leggja grátkórnum lið enda í stöðugri þjálfun. Jafnvel "öreigar" á borð við eigendur Bláa Lónsins voru fljótir að henda sér á þennan vagn og var ekki annað að sjá en tárflóð þeirra eitt og sér myndi valda meiri náttúrhamförum á Svartsengissvæðinu en mögulegt eldgos í Þorbirni. "Öreigarnir" í Bláa lóninu hafa á síðastliðnum árum greitt sér arð sem nemur uþb. tveggja ára launakostnaði hjá fyrirtækinu. Nú er tárahamfaraflóð þeirra mikið þar sem enginn kemur í því ástandi sem er og þá kemur forstjóri fyritækisins með betlistafinn og leggst fyrstur allra á ríkisjötuna. Svona fólk kann ekki að skammast sín. Nær hefði verið fyrir ríkið að fresta gildistöku á greiðslu hlutabóta fram í maí eða jafnvel júni en þá myndi frekar taka við stuðningur sem væri ígildi hlutagreiðslu atvinnuleysisbóta og jafnvel þó starfshlutfall væri ekki minnkað á móti. Flestir eru með þriggja mánaða uppsagnarfrest og því hefði ávinningur fyrirtækja af því að henda sér strax á vagninn orðið skammgóður vermir. Verst stæðu fyrirtækin færu í þrot en þau munu gera það hvort eð er því fólk mun ekki standa í biðröðum eftir að ferðast þegar versta váin er gengin yfir, hvenær sem það verður svo. Þá er ekki til neins að halda fyrirtækjum í öndunarvélum sem reka sig nánast eingöngu á vinnuafli fátæklinga frá Austantjaldslöndunum og skila litlu sem engu til samfélagsins. Nammibúð Ríkíssjóðs verður rekin út á yfirdrátt og seðlaprentun. Þeim skattgreiðendum sem sýnt hafa ráðdeild mun svo verða gert að greiða reikninginn en grátkórunum sem sólunda öllu jafnóðum og grenja hæst verður hampað sem aldrei fyrr. Íslendingar þjást almennt af eiginvorkunnsemi þar sem þeir eru almennt svo uppteknir við hvað þeir eiga bágt enda hefur hún verið innrædd fólki skipulega á síðustu árum. Enginn á lengur að bera ábyrgð á sjálfum sér og þeir sem grenja mest fá mesta aðstoð án þess að þurfa að leggja nokkuð að mörkum sjálfir.
![]() |
Öryrkjar fá eingreiðslu vegna kórónuveirunnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Örn Gunnlaugsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 273
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 212
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.