4.4.2020 | 12:30
Leðurblökuborgari með steiktum snákum.
Við færumst skrefi nær alvöru asískum matseðlum. Smakkaði eitt sinn eitthvað sem líktist helst ánamöðkum í Kína fyrir mörgum árum. Það var með þann rétt sem og marga aðra sem virka "fjarska" spennandi að lítið fannst mér til þeirra koma en gaman að hafa smakkað einu sinni á lífsleiðinni. Íslendingar eru reyndar duglegir við að gagnrýma það sem sumar aðrar þjóðir láta ofan í sig á sama tíma og þeir hesthúsa úldinn fisk á Þorláksmessu og annan skemmdan mat á Þorranum til minningar um þá tíma sem kæli- og frystitæki voru ekki fáanleg. Samt sem áður aðhafast heilbrigðisyfirvöld ekki neitt td. þegar veitingahús landsins sérhæfa sig í úldnum fiski og mengunarmælar Umhverfisstofnunnar líða út af sökum ýldufnyks sem svífur sem þétt þoka og læðist í krók og kima.
Útlit fyrir að skordýr verði leyfð til manneldis | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Örn Gunnlaugsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 84
- Sl. sólarhring: 162
- Sl. viku: 196
- Frá upphafi: 125400
Annað
- Innlit í dag: 71
- Innlit sl. viku: 154
- Gestir í dag: 69
- IP-tölur í dag: 69
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.