Framboð og eftirspurn eldtraustra skápa!.

Innlánsvextir eru orðnir svo lágir að það er orðið umhugsunarefni hvort það sé áhættunnar virði að geyma sparifé umfram það sem tryggt er með innistæðutryggingu í bankanum. Kannski er sá tíma að renna upp á ný að fólk fjárfesti í eldtraustum skápum til að eiga sitt í reiðufé. Á dæmigerðum óbundnum óverðtryggðum reikningi eru bankarnir að greiða 0,05% vexti á sama tíma og yfirdráttarvextir á slíkum reikningi er 9,5%. Þannig er bankinn með 19 þúsund prósent vexti á fé sam hann höndlar með í umboði sparifjáreigenda en því til viðbótar getur hann lánað sömu krónuna oft út. Ef bankinn ætlar að greiða 10 ma arð út núna þá hlýtur að verða gert áhlaup á bankann af sparifjáreigendum. Við skulum hafa í huga að 2008 fóru allir bankarnir á hausinn þrátt fyrir að helstu hagspekúlantar landsins, þmt. Hrungeir á Svörtuloftum sungu korteri í hrun að allt væri í blóma og engin hætta á ferðum, enda bera þessir aðilar enga ábyrgð á sínum herðum.


mbl.is Vilja að hætt verði við 10 milljarða arðgreiðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Alveg rétt. Það gæti reynst erfitt að geyma allt veltufé sitt í bankanum ef kerfið hrynur, sjálfsagt tæki marga mánuði að innheimta það frá innstæðutryggingunum og þá algjörlega vaxtalaust hvort sem er ef ég skil rétt. 
Koddinn er að vísu ekki eldtraustur en veitir ákveðið öryggi bæði í vöku og svefni.

Kolbrún Hilmars, 17.4.2020 kl. 14:55

2 Smámynd: Örn Gunnlaugsson

Það má þá setja eitthvað í sængurverið líka.

Örn Gunnlaugsson, 17.4.2020 kl. 16:33

3 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Undirritaður er nú svo vitlaus, að hann skilur ekki með nokkru móti hvernig fyrirtæki sem hagnast um einn komma einn milljarð (1.100.000.000.-) getur greitt eigendum tíu milljarða (10.000.000.000.-) í arð. Ætli sé hægt að fá uppskriftina af þessu einhversstaðar fyrir lítinn pening?. Þetta er svo sjöfull”hipp og kúl!

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 17.4.2020 kl. 20:14

4 Smámynd: Örn Gunnlaugsson

Halldór, þeir vilja strípa bankann að innan, ekki ósvipað og snillingarnir gerðu fyrir hrunið síðast. Þess vegna er ráðlegt fyrir innistæðueigendur að taka út það sem þeir eiga. Geri það allir fellur bankinn.

Örn Gunnlaugsson, 18.4.2020 kl. 10:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Örn Gunnlaugsson

Höfundur

Örn Gunnlaugsson
Örn Gunnlaugsson

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...p1011234

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.6.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 134
  • Frá upphafi: 130764

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 103
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband