15.7.2021 | 09:33
Lögvarið samráð.
Fjármalastarfsemi virðist vera eina greinin sem nýtur lögvarinna réttinda til samráðs. A.m.k. eru vextir og þjónustugjöld allra viðskiptabankanna keimlík. Kaldhæðnislegt er að forstöðukona samráðsins er fyrrum þingmaður Samspillingarinnar sem gefur sig út fyrir eitthvað allt annað en gildi Mammons. Útlánsvextir eru allt að hundraðfaldir innlánsvextir. Innlánin eru bankarnir í raun með í umboði sparifjáreigenda sem fá í vexti langt innan við það sem nægir til að halda í við verðbólgu sem þrátt fyrir allt ber að greiða fjármagnstekjuskatt af því litla sem þeir ná að hafa upp í verðrýrnun innistæðnanna. Fábjánaskapurinn verður vart meiri. Samspillingarliðið vill auka enn á þessa skattheimtu. Bankarnir leggja síðan allt að 10.000% á innlánin þegar þeir lána þau út. Svo ber þetta stuttbuxnalið bankanna sér á brjóst ofurmontið af gríðarlegum hagnaði bankanna og telur sig snillinga í rekstri við að ná góðri afkomu. Í raun ætti hins vegar að tala um lögvarinn ránsfeng. Það er lítið mál að hagnast fyrir þá sem hafa lögvarinn rétt til að ræna almenning. Fjöldi fólks er í vinnu hjá SKE sem gerði stórmál úr að Eimskip og Samskip verðl0gðu þjónustu sína með samráði nánast upp á krónu. Húsasmiðjan og Byko fengu sína útreið þar sem þeir sammæltust um verðlagningu á spýtum. Olíufélögin voru nöppuð í piknik í Öskjuhlíðinni um árið. En bankarnir njóta óheftrar friðhelgis til að pönkast endalaust á landsmönnum og varðhundur samráðsins kemur úr röðum jafnaðarmanna Samspillingarinnar.
Afkoma Arion banka töluvert fram úr spám | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Örn Gunnlaugsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 8
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 125239
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 33
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.