11.9.2021 | 09:59
Skreytir sig með stolnum fjöðrum.
Ég ók yfir þessar brýr fyrir nokkrum dögum. Ég vona bara að ég hafi ekki áunnið mér eilífðarógæfu vegna þess að ekki höfðu þær þá verið vígðar af þessum tveimur háskólamenntuðu rolluhirðum sem hvorugt hefur nokkra menntun eða reynslu á sviði vegagerðar eða brúarsmíði. Þar var skilti við eina þeirra frá verktakanum sem á stóð,, traustur verktaki í 50 ár,,. En sá verktaki sem byggði þessa brú er ekki nema 7 ára þar sem hann fæddist ekki fyrr en árið 2014. Hann var nú reyndar með 24 ára gamlan undirverktaka í uppsteypunni sem er þaulreyndur í brúarsmíði án þess að minnst sé nokkuð á það á montskiltinu. Þessi 7 ára krakki hélt nú samt upp á 50 ára afmælið sitt í fyrra og notaði fæðingardag annars verktaka sem hét sama nafni til að réttlæta það. Það kallast víst að skreyta sig með stolnum fjöðrum. Hann Jón Jónsson sem fæddist 2011 fer tæplega að halda upp á 100 ára afmælið sitt á þessu ári þó alnafni hans sem fæddist 1921 eigi aldarafmæli, samt löngu dauður. Eimskip hélt reyndar 10 ára upp á 100 ára afmælið sitt 2014 með því að skreyta sig stolnum fjöðrum Eimskipafjelags Íslands hf. sem stofnað var 1914. Er þetta fólk haldið einhverri minnimáttarkennd ?
Vígðu fjórar nýjar brýr | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Örn Gunnlaugsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 51
- Sl. sólarhring: 133
- Sl. viku: 163
- Frá upphafi: 125367
Annað
- Innlit í dag: 42
- Innlit sl. viku: 125
- Gestir í dag: 41
- IP-tölur í dag: 41
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.