7.3.2023 | 14:01
Súrefni dælt til glæpamanna.
Verkkaupi byggingar nýrrar brúar yfir Stóru-Laxá er Vegagerðin. Ekki virðist það snerta þetta ríkisfyrirtæki nokkurn skapaðan hlut að aðalverktakinn Ístak nýti sér þjónustu dæmds skattsvikara og glæpamanns við undirverktöku. Ef ríkisfyrirtækin loka ekki á svona skúrka þá verður þessari glæpastarfsemi viðhaldið um ókomna tíð. Sama er að segja um byggingu nýs Landspítala við Hringbraut þar sem aðalverktakanum Eykt líðst að kaupa þjónustu dæmdra skattsvikara við bygginguna. Framkvæmdastjóri þess opinbera hlutafélags sem er kaupandi af verkinu er fyrrum þingmaður sem sat á þingi fyrir Samfylkinguna í hruninu 2008. Það er mikil einföldun að kenna Sjöllum um alla glæpi þó skítugir séu að utan sem innan, hinir eru greinilega ekkert skárri hvað stuðnig við glæpahyski varðar, VG og Samfylkingin þar með talið.
40 ábendingar um bresti í bókhaldi Vegagerðarinnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Örn Gunnlaugsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 8
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 125239
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 33
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Lengi lifi "fjórflokkurinn"!
Sigurður I B Guðmundsson, 7.3.2023 kl. 15:19
Já Sigurður, þetta eru nefnilega fjórflokkarnir allir með tölu, þó þeir hafi skreytt sig með nýjum nöfnum. Ég gleymdi að nefna Framsókn í pistlinum en sál hans er með þeim svörtustu þó þeir klæðist geislabaugum og fjöðrum. Verst er að það eru engir aðrir til að taka við, þeir eru svo uppteknir við að mótmæla því sem gert er án þess að koma með neitt í staðinn.
Örn Gunnlaugsson, 7.3.2023 kl. 16:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.