Flytja svæðið undir aðra lögsögu.

Fyrir einhverjum árum var tæpt á því að það svæði sem Íslendingar hafa með höndum yrði tekið af þeim og það sett undir stjórn erlendis. Sennilega er því bara best komið þannig. Það er ótækt að örfáir aðilar sem sá hópur er sem hér um ræðir hafi í valdi sínu að loka á flugumferð til og frá landinu. Það færi vel á því að upplýst væri hve margir flugumferðarstjórar eru í starfi hér og hafi þetta vald. Hér er ekki um að ræða samninga heldur þvinganir: þ.e. ef þið samþykkið ekki kröfur okkar lokum við landinu. Ef tala á um frjálsa samninga verður samningsaðilinn að hafa frelsi til að semja við aðra hugnist honum ekki að láta einn aðila kúga sig til hlýðni. Þegar flugstjórnarsvæðið hefur verið tekið af Íslendingum geta ófriðarseggirnir sótt um vinnu þar fyrir brot af þeim launum sem þeir hafa hér.


mbl.is Vilja 25% launahækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birgir Örn Guðjónsson

Sammála !

Flugumferðastjórar hafa það gott. Fullkominn tölvubúnaður sér að miklu leyti um flugumferð, eftir að flugvél tekur á loft og nær hæð. Sést best á því að þegar þessi tölvubúnaður hefur hökt/bilað þá lokast fyrir flug, Flugumferðastjórar geta ekki stjórnað án búnaðarins, og eru handalausir án hans !

Birgir Örn Guðjónsson, 13.12.2023 kl. 14:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Örn Gunnlaugsson

Höfundur

Örn Gunnlaugsson
Örn Gunnlaugsson

Færsluflokkar

Júlí 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Nýjustu myndir

  • ...p1011234

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.7.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 118163

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband