14.5.2024 | 09:49
Brottfararstyrkir ?
Vitleysisgangurinn getur varla orðið meiri. Það á einfaldlega ekki að hleypa fólki inn í landið sem ekki hefur fyrirfram útgefið leyfi til landgöngu. Komi það án slíks leyfis á að gera flutningsaðila ábyrgan fyrir því að flytja viðkomandi til baka á þann stað sem hann kom frá að viðlögðum stórsektum. Taka þarf upp vegabréfaeftirlit á landamærunum og víða annars staðar er farþegum ekki heimild að fara um borð í flutningsfar nema færa sönnur á að hann hafi heimild til landgöngu á áfangastað. Það er löngu tímabært að þessar lyddur sem sitja í Gaukshreiðrinu á Austurvelli girði sig í brók og fari að vinna að því að alvöru að við Íslendingar fáum sjálfstæði okkar á ný. Það virðist gleymast að sjálfstæði þjóðarinnar fékkst ekki gefins þó einhverjir krakkar á þinginu og no borders fylgifé þeirra sem aldrei hafa unnið ærlega vinnu telji það lítilfjörlegt.
Kostnaður meira en 100-faldast | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Örn Gunnlaugsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 8
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 125239
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 33
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þetta er svo yfirgengilegt og maður verður bara pirraður að hlusta á þetta fólk sem fer með þessi mál fyrir okkar hönd. Talað og talað en ekkert framkvæmt. Sorglegt en satt.
Sigurður I B Guðmundsson, 14.5.2024 kl. 10:46
Sigurður. Þetta er afskaplega einfalt mál. Ísland er eyja og það á bara alls ekki að hleypa fólki inn í landið sem ekki hefur fengið fyrirframútgefið leyfi til landgöngu. Ef flutningsaðilinn er gerður ábyrgur þá er ekkert vandamál. Þú ferð ekki um borð í flutningsfar með ákvörðunarstað td. í USA eða Kína ofl. löndum nema fyrir liggi að þér sé heimilt að koma þangað.
Örn Gunnlaugsson, 14.5.2024 kl. 12:54
En Örn, þetta er Ísland og hér ríkir óregla á flestum sviðum.
Sigurður I B Guðmundsson, 14.5.2024 kl. 13:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.