17.8.2025 | 08:56
Frumskógarlögmálið....
virðist gilda hér sem og annars staðar víða í samfélaginu. Fyrirtæki leyfa sér að stofna kröfur vegna útgefinna reikninga í heimabanka og bæta við einhvers konar greiðslugjaldi eins og það sé ekki hluti af rekstrarkostnaði rekstraraðila. Amk. á þá að gefa viðkomandi kost á að greiða með millifærslu án aukakostnaðar. Bílastæðamálin virðast vera í algjörum Villta Vesturs stíl, Ef þú borgar ekki það sem ég set upp án þess að nokkur sé þó á svæðinu til að rukka þig þá mun ég rýja þig inn að skinni. Komið hefur fyrir að lagt hefur verið í óleyfi á einkabílaplani mínu við heimili mitt. Ég ætti kannski að setja upp skilti þar sem fram kemur að þeir sem geri slíkt verði skotnir af sjálfvirkum rifflum á svæðinu og drepist þeir ekki strax verði þeir hengdir í kjölfarið, svona sem nokkurs konar vanskilagjald. Græðgin er allt um koll að keyra og sýnu verstir eru þeir sem eru í ferðamannabransanum, þeir eru gráðugastir en gráta samt krókódílatárum, eru algjörlega óseðjandi.
![]() |
Er mjög undrandi á því sem er að gerast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Örn Gunnlaugsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.8.): 150
- Sl. sólarhring: 174
- Sl. viku: 552
- Frá upphafi: 132447
Annað
- Innlit í dag: 120
- Innlit sl. viku: 427
- Gestir í dag: 114
- IP-tölur í dag: 114
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning