5.6.2025 | 17:50
Vantar upp á lesskilninginn ?
Langt er síðan ljóst var að núverandi Seðlabankastjóri þarf textavél en svo virðist sem eitthvað vanti upp á lesskilninginn hjá honum líka. Það er skýrt kveðið á um í tvennum lögum sem eru í fullu gildi að seðlar og mynt gefin út af Seðlabanka Íslands skulu tekin á fullu ákvæðisvirði í viðskiptum hér á landi. Um er að ræða lög um Seðlabanka Íslands og lög um gjaldmiðil Íslands. Einu takmarkanirnar eru að seljendum er ekki skylt að taka við hærri upphæð í sleginni mynt en 500 krónum í hverjum viðskiptum. Það vantar hins vegar talsvert upp á að embættismenn í landinu sem eru á launum hjá skattgreiðendum vinni fyrir kaupinu sínu og framfylgi gildandi lögum.
![]() |
Gæti orðið skylda að taka við reiðufé |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.6.2025 | 09:51
Fínu heitin.
Fínt heiti hefur þróast á það sem raunverulega er ólöglegir innflytjendur og er nú af góða fólkinu kallað umsækjandur um alþjóðlega vernd. Svona breytist tungumálið. Lífskúnstnerinn sem nú er talað um kallaðist róni fyrir margt löngu. En hvað sem því líður þá líður ekki sá dagur að upp koma mál þar sem embættismenn okkar henda fjármunum skattgreiðenda hreinlega út um gluggann. Í þessu tilviki er verið að sóa peningum í leigu á húsnæði undir fólk sem kemur til landsins án þess að hafa tilskilin leyfi til þess og embættismönnunum sem höndla með þetta er skítsama. Endalaust má slíta fjármuni af peningatrénu sem eru skattgreiðendur að mati embættismannahyskisins sem aldrei hefur kynnst öðru an atvinnubótavinnu. Fjárhirði í sveitinni sem hegðaði sér svona hefði aldrei verið treyst fyrir hjörðinni og yrði rekinn en aldrei hjá ríkinu.
![]() |
Skattpeningar renna í tóm hús |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.5.2025 | 10:31
Þarf ekki að auglýsa embættið ?
Þarf ekki að auglýsa embættið á sama hátt og það sem Úlfar var hrakinn úr ? Stjórnmálamennirnir og embættismennirnir eru skattgreiðendum býsna dýrir. Nú hyggst þessi svokallaði dómsmálaráðherra puðra skattfé í að endurvekja embætti sem ekki hefur verið starfrækt í 15 ár til að koma sér hjá því að taka á vandamálinu. Umræddur dómsmálaráðherra eins og svo mörg starfssystkyni hennar telur greinilega að ríkið sé einhvers konar planta bak við þinghúsið sem endalausir peningar vaxa á. Hvernig á að vera hægt að ætlast til að nokkur beri snefil af virðingu til alþingis þegar þeir sem þar sitja gera sér ekki grein fyrir því að skattbyrði almennings veltur á virðingaleysi þeirra við annara manna fé ? Að fullyrða að skattsvikarar velti auknum byrðum á aðra þegar svona er háttað er hrein fjarstæða, það eru stjórnmálamennirnir sem það gera með því að ganga um skattfé almennings sem skít. Þetta veitir skattsvikurum landsins nokkra uppreisn æru. En Helgi ætti að geta vel við unað, réttast að hann sýni þessu liði löngutöng og fara að hafa það náðugt. Þessi bárátta er töpuð, svo virðist sem þeir sem vilja verja þetta samfélag séu hraktir í burtu af liði sem aðhyllist innflutning á glæpalýð og óþverraómenningu sem núþegar tröllríður samfélagi okkar.
![]() |
Vill flytja Helga Magnús |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.5.2025 | 15:34
Byggt ból.
Þessi kommabredda er greinilega ekki mjög meðvituð um heimsbyggðina. Bendir til að hafa lítið farið að heiman og slíkt veldur heimsku.
![]() |
Pólitísk stefna að hafa vexti svona háa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
10.5.2025 | 10:42
Á háannatíma......
getur bara þannig staðið á að þú komist ekki í gegn á fimm mínútum, ekki ekurðu yfir þá sem eru fyrir framan þig. Stjórnendur Isavia eru klókustu féflettar sem sögur fara af. Nú er tímabært að hylja bílnúmerin meðan ekið er í gegn og rétta þessu liði löngutöng.
![]() |
Nýtt fyrirkomulag bílastæðamála kynnt mjög vel |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.5.2025 | 10:37
Ekki einn um það.
Stjórnendur Isavia hafa sýnt að þeir hafa litla hæfileika í þau störf sem þeir sinna. En eitt kunna þeir og það er að féfletta þá sem þurfa að fara í gegnum flugstöðina.
![]() |
Mér finnst þetta bara vera glæpastarfsemi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.5.2025 | 10:02
Nígeríugangsterar.
Fyrir nokkrum áratugum þegar ég starfaði á fraktskipum sem fluttu skreið til Nígeríu var viðvarandi vandamál hve miklu var rænt úr vöruskemmum sem skreiðin var flutt í og jafnvel gerð áhlaup á þær. Eigendur farmsins áttu í miklum vanda við að ráða bót á þessu en endirinn varð sá að glæpagengin sem stálu úr skemmunum voru ráðin til að vakta þær. Og merkilegt nokk, nú virtist ekki stolið svo miklu sem sporði, eða þannig leit það út amk. Mig rekur ekki minni til að Ólafur Þór hafi verið meðal þeirra áhafna sem ég var í á þessum árum en einhvernveginn hefur hann öðlast mikla hæfileika í svona gangsterataktík. Víða hef ég komið í veröldinni og orðið vitni af gríðarlegri spillingu. Spillingin er ekkert minni hérlendis en munurinn er sá að hér sitja gjörspilltir embættismenn sem fastast og sjá ekkert athugavert við misgjörðir sínar. Bæði Héraðssaksóknari og Ríkissaksóknari virðast haldnir þessum kvilla á mjög alvarlegu stigi. Og svo á almenningur að hafa trú á réttarkerfinu.
![]() |
Saksóknari samdi við PPP |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.5.2025 | 09:35
OKURHÖFNIN
Tollfrjálst getur það verið en verðið samt sambærilegt eða jafnvel hærra en þegar er komið inn fyrir landamærin. Tóbak og sterkt spritt er jú ódýrara. Munurinn á léttvínsflösku 5 - 600 krónur. Þessi okurbúlla er eingöngu hagstæð fyrir reykingamenn og alvöru byttur sem nenna ekki að sulla í léttu. Nammið er ofter en ekki á lægra verði innan landamæranna. Aður komst ég hjá því að stíga fæti þarna inn en nú er ég nauðbeygður til að fara í gegnum okursjoppuna en ég kaupi ekkert þar lengur.
![]() |
Áfengi og tóbak dýrara við komuna til landsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.4.2025 | 12:17
Myndir af þeim.
Ég á ágætis myndasafn af þessum pjökkum. Þegar ég hef náð í skottið á þeim munu þeir óska þess að lögreglan hefði náð þeim á undan. En þeir mega byrja að hlakka til.
![]() |
Grímuklæddir drengir spörkuðu í hurðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.4.2025 | 10:15
Hverjir brjóta lög ?
Það eru ekki fyrirtæki eða ráðuneyti sem brjöta lög. Það eru einstaklingar sem brjóta lögin og ættu þeir því að greiða sektirnar sjálfir séu þeir brotlegir. Starfsmaður á fyrirtækisbifreið sem ekur yfir hámarkshraða eða undir áhrifum áfengis er sjálfur ábyrgur fyrir sínum brotum og ber að greiða sektir vegna þeirra. Hvers vegna ætti eitthvað annað að gilda í þessum efnum ? Er eðlilegt að þeir sem starfa hjá hinu opinbera þurfi aldrei að bera ábyrgð á gjörðum sínum ? Þeim finnst það jú sjálfum.
![]() |
Persónuverndarlög gilda einnig um stjórnvald |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Örn Gunnlaugsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 272
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 211
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar