10.5.2025 | 10:42
Á háannatíma......
getur bara þannig staðið á að þú komist ekki í gegn á fimm mínútum, ekki ekurðu yfir þá sem eru fyrir framan þig. Stjórnendur Isavia eru klókustu féflettar sem sögur fara af. Nú er tímabært að hylja bílnúmerin meðan ekið er í gegn og rétta þessu liði löngutöng.
![]() |
Nýtt fyrirkomulag bílastæðamála kynnt mjög vel |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.5.2025 | 10:37
Ekki einn um það.
Stjórnendur Isavia hafa sýnt að þeir hafa litla hæfileika í þau störf sem þeir sinna. En eitt kunna þeir og það er að féfletta þá sem þurfa að fara í gegnum flugstöðina.
![]() |
Mér finnst þetta bara vera glæpastarfsemi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.5.2025 | 10:02
Nígeríugangsterar.
Fyrir nokkrum áratugum þegar ég starfaði á fraktskipum sem fluttu skreið til Nígeríu var viðvarandi vandamál hve miklu var rænt úr vöruskemmum sem skreiðin var flutt í og jafnvel gerð áhlaup á þær. Eigendur farmsins áttu í miklum vanda við að ráða bót á þessu en endirinn varð sá að glæpagengin sem stálu úr skemmunum voru ráðin til að vakta þær. Og merkilegt nokk, nú virtist ekki stolið svo miklu sem sporði, eða þannig leit það út amk. Mig rekur ekki minni til að Ólafur Þór hafi verið meðal þeirra áhafna sem ég var í á þessum árum en einhvernveginn hefur hann öðlast mikla hæfileika í svona gangsterataktík. Víða hef ég komið í veröldinni og orðið vitni af gríðarlegri spillingu. Spillingin er ekkert minni hérlendis en munurinn er sá að hér sitja gjörspilltir embættismenn sem fastast og sjá ekkert athugavert við misgjörðir sínar. Bæði Héraðssaksóknari og Ríkissaksóknari virðast haldnir þessum kvilla á mjög alvarlegu stigi. Og svo á almenningur að hafa trú á réttarkerfinu.
![]() |
Saksóknari samdi við PPP |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.5.2025 | 09:35
OKURHÖFNIN
Tollfrjálst getur það verið en verðið samt sambærilegt eða jafnvel hærra en þegar er komið inn fyrir landamærin. Tóbak og sterkt spritt er jú ódýrara. Munurinn á léttvínsflösku 5 - 600 krónur. Þessi okurbúlla er eingöngu hagstæð fyrir reykingamenn og alvöru byttur sem nenna ekki að sulla í léttu. Nammið er ofter en ekki á lægra verði innan landamæranna. Aður komst ég hjá því að stíga fæti þarna inn en nú er ég nauðbeygður til að fara í gegnum okursjoppuna en ég kaupi ekkert þar lengur.
![]() |
Áfengi og tóbak dýrara við komuna til landsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.4.2025 | 12:17
Myndir af þeim.
Ég á ágætis myndasafn af þessum pjökkum. Þegar ég hef náð í skottið á þeim munu þeir óska þess að lögreglan hefði náð þeim á undan. En þeir mega byrja að hlakka til.
![]() |
Grímuklæddir drengir spörkuðu í hurðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.4.2025 | 10:15
Hverjir brjóta lög ?
Það eru ekki fyrirtæki eða ráðuneyti sem brjöta lög. Það eru einstaklingar sem brjóta lögin og ættu þeir því að greiða sektirnar sjálfir séu þeir brotlegir. Starfsmaður á fyrirtækisbifreið sem ekur yfir hámarkshraða eða undir áhrifum áfengis er sjálfur ábyrgur fyrir sínum brotum og ber að greiða sektir vegna þeirra. Hvers vegna ætti eitthvað annað að gilda í þessum efnum ? Er eðlilegt að þeir sem starfa hjá hinu opinbera þurfi aldrei að bera ábyrgð á gjörðum sínum ? Þeim finnst það jú sjálfum.
![]() |
Persónuverndarlög gilda einnig um stjórnvald |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.4.2025 | 12:34
Sviðakjammar og handklæðahausar......
ótalandi á íslenska tungu og jafnvel ensku bíða svo í röðum utan við flugstöðina með TAXA merki á bílum sem eina leigubílavalkost að flytja ferðamenn í bæinn. Harkaraleyfið fengu margir hverjir með svindli enda prófið á Íslensku. Dæmi um startgjald upp á 10 þúsund og svo er túrinn verðlagður að hentugleikum þessara svokölluðu bílstjóra. Oftar en ekki engir íslenskumælandi bílstjórar fyrir utan enda þora tæplega að blanda sér í þennan hrylling. Margt gerist undarlegt í kringum Isavia en steininn tekur úr þegar ekki er hægt að fá leigubíl fyrir utan flugstöðina með öðum bílstjórum en koma innan úr svörtustu Afríku eða úr ranni myrkustu ómenningar íslam sem ekkert erindi á í okkar samfélag. Þetta er engan veginn boðlegt og þrátt fyrir að vera ekki í hópi hinna viðkvæmustu dytti mér aldrei í hug að setjast upp í bíla þeirra sem hér um ræðir. Nú á lag Valgeirs svo sannanlega við, Ég held ég gangi heim.
![]() |
Þetta flæðir inn í landið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.3.2025 | 10:14
Er þetta frétt ?
Þetta er öllu fólki með fullu viti ljóst. Fátt slíkt fólk var augljóslega hjá Isavia þegar þetta gerðist og almennt virðist slíku fólki reyndar fara fækkandi. Mannvitsbrekkurnar hjá Isavia gerðu reyndar enn betur og kröfðust þess að leigusali vélanna gerði upp skuldir skúrsksins. Og þegar þeirri fásinnu var hafnað hóf Isavia undir forystu núverandi forstjóra málarekstur sem gekk út á að krefja flugvélaleigufyrirtækið um uppgjör á skuldum leigutaka vélanna. En fóru bónleiðir til búðar. Þó skúrkurinn hafi marga skilið eftir í sárum rekur hann í dag blómlegan ferðamannabisness í nágrenni borgarinnar. Þarna gerði Isavia algjörlega upp á bak. Samskonar viðskiptamódel er nú í andaslitrunum þótt fáir kæri sig um að hafa orð á því og fólk er enn að kaupa miða með því apparati. Það er nokkuð ljóst að eignalaust fyrirtæki í viðvarandi taprekstri að þeirri stærðargráðu sem hér um ræðir getur aðeins endað með gríðarlegri steinsmugu eins og sporin sýna. Þó eru dæmi um að taprekstur gangi upp til lengri tíma ef einhverjir eru tilbúnir til að moka peningum í slíkt. Þó Vestmannaeyjadrottningin moki peningum inn í taprekstur málgagns þess sem hér er skrifað í finnst tæplega samskonar velvild nokkurs staðar til pengamoksturs í vonlausan rekstur sem ekki hefur áróðurshlutverki að gegna.
![]() |
WOW air var í raun gjaldþrota löngu fyrr |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.2.2025 | 13:08
Ódýr skýring.
Gullfiskaminni Íslendinga er ótrúlegt. Þingmenn hafa líka notað þennan frasa mikð, þ.e. að þeir eigi erfitt uppdráttar eftir þingmennsku en samt virðast þeir ávallt koma sér fyrir í mjúkbólstruðum blómastólum að þingmennsku lokinni. Ég minnist þess ekki að hafa nokkurn tímann á lífsleiðinni fengið greidd laun lengur en til þess dags er ég lét af störfum, Biðlaun og Neyðarsjóður er eitthvað sé ég hef aldrei haft hugmyndaflug í að láta mig dreyma um frekar en almennt fólk á vinnumarkaði. En þetta þykir víst bara eðlilegt meðal þeirra sem eru jafnari en aðrir í hinu gjörÓspillta samfélagi okkar. Og víst er að verkalýðsforkólfarnir eru almennt ekkert minna bíræfnir en banksterarnir voru í hruninu.
![]() |
Lítur á biðlaunin sem tímabundna afkomutryggingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.2.2025 | 09:15
Animal Farm er víða.
Verkalýðsforingjarnir eru margir hverjir greinilega ekkert skárri en það fólk sem þeir eru duglegastir við að gagnrýna nema síður sé. Napóleon og Snækollur leynast í ýmsum skúmaskotum. Þingmenn Flokks Fólksins gefa sig út fyrir að berjast fyrir því að lítilmagninn fá sanngjarnari sneið af kökunni, það er eftir sem áður jafn mikið til skiptanna. Þeir sem maka krókinn sér til hagsbóta á þennan hátt sýna þetta ekki beint í verki. Nú verður minna eftir af kökunni fyrir almenna félagsmenn VR.
![]() |
Ragnar Þór fékk um 10 milljóna eingreiðslu frá VR |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Um bloggið
Örn Gunnlaugsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.5.): 3
- Sl. sólarhring: 10
- Sl. viku: 297
- Frá upphafi: 129901
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 240
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar