19.9.2024 | 17:56
Skjót viðbrögð skipta máli, óeirðarseggir uggðu ekki að sér.
Þarna var brugðist svo skjótt við að iðjuleysingjarnir sem dunda sé við að mótmæla hinum ýmsu hlutum uggðu ekki að sér og meira að segja Vinstri Grænir ráðherrar voru enn í fastasvefni þegar litli sæti bangsinn var skotinn. Nú er væntanlega næst á dagskrá hjá óeirðarseggjum að krefjast þess að gerðar verði tilraunir til endurlífgunar á litla sæta bangsa.
![]() |
Eina leiðin var að fella björninn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
17.9.2024 | 10:25
Borga þau til samfélagsins?
Er þessi óþjóðaskríll einhvers staðar í vinnu ? Hefur það einhvern tímann lagt samfélaginu eitthvað til annað en vandræði og tjón ? Er ekki rétt að þessi götulýður gangist bara í ábyrgð og beri kostnaðinn persónulega af því að þessu liði er hrúgað inn í landið. Þegar það rís ekki lengur fjárhagslega undir því að halda þessu liði uppi þá verði því vísað úr landi, og götulýðnum helst með en það má víst ekki. Þetta er mjög fámennur en jafnframt mjög hávær frekjuhópur. Er kannski kominn tími til að þeir sem styðji brottvísunina efni til uppþota eins og þessara ?
![]() |
Myndir: Mótmælt fyrir utan ríkisstjórnarfund |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.9.2024 | 17:37
Virðing forsetans...
er komin í ruslflokk. Þegar Kristján Eldjárn var forseti var ekkert gleðipinnakjaftæði.Þetta athyglissýkisbull hófst með Guðna sem var mest upptekinn af sokkunum sem hann var í hverju sinni. Núverandi forseti heldur greinilega að hún eigi að vera einhver glansskinka. Síðasti alvöruforseti sem við höfum haft er Óli, hann stóð með þjóðinni og hans vegna erum við ekki leiguliðar útlendinga í dag.
![]() |
Halla T og Þorbjörg Sigríður féllu fyrir sömu skyrtunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.9.2024 | 10:46
Loksins !
Þarna hitti Simmi einmitt naglann á höfuðið. Stór partur af eftirspurn eftir húsnæði er akkúrat vegna fjölda hælisleitenda sem hingað streynir án þess að nokkuð sé spyrnt við fótum. Svo þurfa hinir sem hingað koma til að vinna líka að búa einhvers staðar. Eftirspurnin eykst með fjölgun innflytjenda og verðið þrýstist upp. Þetta er svipað og að pissa í skóinn sinn, skammgóður vermir. Hingað er flutt inn ómenning og siðblinda úr myrkustu menningarheimum miðalda og birtingarmynd þess hér er sá hryllingur sem við sjáumst ágerast í okkar samfélagi með hverjum deginum sem líður. Sá hópur sem hér hefur hreiðrað um sig og fer sístækkandi er orðinn svo atkvæðamikill að krossar mega ekki sjást lengur í kirkjugörðum landsins. Næsta skref verður sennilega að sett verður í lög að konur verði jarðsettar með búrku og karlar með handklæði á hausnum að jarðvist lokinni. Þá vil ég nú heldur enda í spilliefnagámi Sorpu.
![]() |
Innflutt vinnuafl sett fram fyrir iðnnema |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.9.2024 | 09:43
Flugfélag í dauðateygjunum.
Það styttist greinilega í endalokin hjá þeim. Ekki myndi ég kaupa miða hjá þeim, ekki einu sinn þó flugið væri á morgun. Forverar þeirra lögðu upp laupana mjög skyndilega, í bæði skiptin voru farþegar úti á velli og biðu vélanna sem aldrei komu. Skúrkurinn sem síðast lagði upp laupana var enn að selja miða þó engar kæmu vélarnar. Og Isavia tók tryggingu í eigum annarra fyrir lendingagjöldum skúrksins, en það hélt auðvitað ekki fyrir dómi. Þeir sem eru hrifnir af rúllettu stökkva á þetta tilboð nú.
![]() |
Ný auglýsing Play vekur úlfúð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.9.2024 | 14:04
Ekki landsmenn fyrr en þeir hafa lært málið.
Víst er það svo að flestir hafa komið hingað til að vinna en það er samt aðdáunarvert að sjá hve margir þeirra eru miklu fljótari að læra á bótakerfið en tungumál landsins. Hvers vegna eiga skattgreiðendur hér að greiða fyrir Íslenskukennslu þessa fólks? Sjálfur hef ég búið og starfað erlendis og hvergi hafa skattgreiðendur þess lands greitt fyrir tungumálanám útlendinga sem flutt hafa þangað. Guðmundur Ingi er algjörlega á villigötum hér eins og reyndar í flestu öðru. Þó ég sé kominn vel á seinni hálfleikinn í jarðvistinni gæti svo farið að Íslenskan verði alveg horfin þegar ég kveð og flyt í blómabrekkuna. Þar er sannilega bara talað eitt tungumál, Alheimska.
![]() |
20% landsmanna eru innflytjendur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.9.2024 | 13:52
Ekki fjöldi fiska.
Hafa verður í huga að ekki er í öllum tilfellum um að ræða fjölda fiska. Í mörgum ám er dýraníð stundað af miklum móð en það kallast að veiða og sleppa, svolítið eins og hjá löggunni. Góðkunningjar lögreglunnar eru kannski ekki stór hópur, miklu frekar að hver og einn sé oft í heimsókn. Eins er þetta með prikveiðina. Ekki eru neinar tölur fyrirliggjandi um hvað sami fiskurinn hefur veiðst oft.
![]() |
Átta ár komnar yfir þúsund laxa í sumar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.9.2024 | 10:03
Gott að sofa í þeim.
Ef það sem fram fer á þinginu veltur á stólunum sem hinir kjörnu aðilar sitja í þá gæti maður átt von á að eitthvað batnaði. En ég held að meira skipti máli að hafa þá mjúka svo þingmennirnir okkar fengju raunverulegan svefn samhliða því að vera steinsofandi yfir því sem er að gerast í samfélagi okkar.
![]() |
Þingmenn setjast í nýja stóla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.9.2024 | 09:59
Minn gamli skóli.
Ég gekk í Laugarnesskóla alla mína barnaskólatíð og leið mér afskaplega vel þar, var afburðarnemandi þó ég segi sjálfur frá. Námsframmistöðu minn hrakaði þó verulega í gagnfræðaskóla þar sem ég var aðskotaviðundur í brimróti og saltroki vestur af Reykjavík en það bæjarfélag þótti afskekkt á þeim tíma en varð snobb síðar þó alltaf hafi það verið svefnbær. Sá skóli var byggður 1974. Ég er kominn á sjötugsaldur en ég minnist þess að alla mína skólagöngu í Laugarnesskóla voru bæði þeir starfsmenn og nemendur sem ég man eftir allir við hestaheilsu. Mygluð hús var eitthvað sem fólk var ekki með á milli tannanna þá. Sama má segja um Valhúsaskólann, ekki urðu neinir varir við myglu þar meðan ég nam við skólann og reyndar löngu eftir að minni skólagöngu lauk þar og ég hóf nám við skóla lífsins. Nú er fólk forviða yfir því að öll hús mygli, gömul og ný og þrátt fyrir aukna menntun þeirra sem að húsbyggingum koma dettur engum í hug að gott væri að lofta út, opna glugga td. og hætta að bera fram eftirlæti myglu sem byggingarefni, þ.e. gifsplötur. Valhúsaskóli andaði vel og myglaði ekki þar til ákveðið var að loka fyrir öndun inn í húsið sem hönnuð var í upphafi og um leið sótti mygla í sig veðrið. En það er kannski táknrænt að skólarnir mygli eins og kennslan en eins og ítrekað hefur verið í umræðunni þá eru gæði kennslu komin á par við gæði húsbygginga í dag þrátt fyrir aukna menntun kennaranna. Áður voru jafnvel bara leiðbeinendur sem kunnu jafnvel betur að miðla þekkingu sinni til nemenda en sprenglærðir kennarar nútímans. Fjöldi nemenda kemur ótalandi á íslenska tungu út úr skólunum með lesskilning í ruslflokki og getur þar að auki ekki skrifað skammlaust rétt mál. Foreldrar nútímans telja sér alls óskylt að koma að námi sinna barna, þeirra hlutverk er aðeins að búa þau til og svo geta yfirvöld átt restina. Enginn þorir að ráðast að rót vandans hvorki varðandi húsbyggingar né menntakerfið og keppnin um að vera sem mest hissa heldur bara áfram.
![]() |
Tugir kennara hröktust úr starfi vegna myglu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.8.2024 | 12:42
Halli, Palli og Bubbi.....
greiði þá úr eigin vasa upphald og framfærslu hans og allra þeirra sem þeir vilja hrúga inn í landið og geta ekki framfleytt sér.
![]() |
Skora á flugfélög að neita að flytja Yazan úr landi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Örn Gunnlaugsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 13
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar