Brottfararstyrkir ?

Vitleysisgangurinn getur varla orðið meiri. Það á einfaldlega ekki að hleypa fólki inn í landið sem ekki hefur fyrirfram útgefið leyfi til landgöngu. Komi það án slíks leyfis á að gera flutningsaðila ábyrgan fyrir því að flytja viðkomandi til baka á þann stað sem hann kom frá að viðlögðum stórsektum. Taka þarf upp vegabréfaeftirlit á landamærunum og víða annars staðar er farþegum ekki heimild að fara um borð í flutningsfar nema færa sönnur á að hann hafi heimild til landgöngu á áfangastað. Það er löngu tímabært að þessar lyddur sem sitja í Gaukshreiðrinu á Austurvelli girði sig í brók og fari að vinna að því að alvöru að við Íslendingar fáum sjálfstæði okkar á ný. Það virðist gleymast að sjálfstæði þjóðarinnar fékkst ekki gefins þó einhverjir krakkar á þinginu og no borders fylgifé þeirra sem aldrei hafa unnið ærlega vinnu telji það lítilfjörlegt.


mbl.is Kostnaður meira en 100-faldast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stærsta elliheimilið ?

Hvenær mun hún svo halda fund á stærsta elliheimili Íslendinga, þ.e. í Torrevieja ? Einhver nefndi við mig að um 4.000 íslenskir gamlingjar haldi þar til. Þar er því eftir einhverju að slægjast.


mbl.is Halla Hrund heldur kosningafund í Kaupmannahöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einhverjir taki pokann sinn.

Það mætti td. byrja á að sparka þeim stjórnendum sem bera ábyrgð á klúðrinu og einnig hinum sem stefna einhverjum allt öðrum en skuldaranum til greiðslu til þess eins að valda félaginu enn meira tjóni.


mbl.is Isavia íhugar viðbrögð við sýknudómi Hæstaréttar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verðfellt glingur.

Fjölmargir orðuhafar hafa fengið þetta glingur fyrir það eitt að mæta í vinnuna og jafnvel ekkert allt of vel. Dæmi eru um að sumir hafi fengið orðuna fyrir að pönkast á skattgreiðendum og misnota styrki frá ríkinu td. í Covid til að halda fólki á launum en samt haft það í blússandi verkefnum til eigin tekjuöflunar á sama tíma. Ef um væri að ræða einhverja alvöru orðu væri hún eingöngu veitt fyrir alvöru afrek eins og td. lífsbjörg.


mbl.is Kippur í skilum fólks á fálkaorðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hugmyndaflug á heimsmælikvarða!

Það verður nú að taka viljann fyrir verkið hjá þessum snillingum sem stjórna Isavia. Ef þessi dómur hefði fallið Isavia í vil þá hefðu kröfuhafar vegna skulda í fasteignum getað stefnt nágrönnum skuldarans til greiðslu og gert lögtak í húsum þeirra bara fyrir þær einu sakir að búa í sömu götu og skuldarinn. Hjá Isavia er ekki ein báran stök. Allt sem kemur að þjónustu er rukkað fyrir upp fyrir rjáfur. Á Keflavíkurflugvelli er gjaldtaka fyrir bílastæði með þeim hætti að sé ferðast fyrir nokkra daga til útlanda þá borgar sig frekar að taka leigubíl af höfuðborgarsvæðinu en að geyma bílinn úti á velli. Svo hressilega er rukkað fyrir aðstöðu á vellinum að það er aðeins fyrir efnafólk að kaupa þar eitthvað að bíta og brenna. Reyndar er fóðrið á vellinum sem stendur til boða svo dapurt að flokka verður það með andafóðri í brauðformi. Ótrúlegt að ekki skuli vera hægt að bjóða þar upp á mat eins og td á Kastrup, Heathrow eða Gatwick. Klúðrararnir sem stjórna Isavia sitja sem fastast þrátt fyrir að valda félaginu sem er í eigu ríkisins stórtjóni. Mörgum er nú sparkað fyrir minna í einkageiranum. En þessi málarekstur sýnir að hugmyndaflugið er frjótt hjá snillunum, Sky is the limit!


mbl.is Isavia hlaut ekki meðbyr í Hæstarétti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Félag stórglæpamanna....

Verður því ekki örugglega tilkynnt formlega hvenær embættið verður að heiman svo þeir geti skilpulagt sig tímanlega ? Hvort sem svo er eða ekki lekur allt svona út. Hvers konar forheimska er í gangi hér ? Ríkisjöturassar virðast bara hafa tapað glórunni algjörlega í heild sinni.


mbl.is Árshátíð ríkislögreglustjóra haldin í Tékklandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aukin álagning.

Hækkun útlánsvaxta og lækkun innlánsvaxta þýðir á mannamáli aukin álagning. Svona tekur bankinn þátt í samfélagssáttinni sem gerð var í kjarasamningunum.


mbl.is Arion banki hækkar vexti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvers vegna ekki fram að 18 ára aldri ?

Sú krafa verður hávær verði heimildin rýmkuð meðan barnið er í móðurkviði. Svo má líka hugsa sér heimild móður til þessara ráðstafana meðan erfinginn er á lífi. Svona til að passa upp á að viðkomandi hegði sér ásættanlega.


mbl.is Vill engin tímamörk á fóstureyðingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Örn Gunnlaugsson

Höfundur

Örn Gunnlaugsson
Örn Gunnlaugsson

Færsluflokkar

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...p1011234

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 16
  • Sl. sólarhring: 96
  • Sl. viku: 117
  • Frá upphafi: 127903

Annað

  • Innlit í dag: 14
  • Innlit sl. viku: 96
  • Gestir í dag: 14
  • IP-tölur í dag: 14

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband