16.5.2024 | 17:14
Standið við stóru orðin.
Og rétt að taka svo upp alvöru landamæraeftirlit þannig að enginn fái landgöngu nema hafa fyrirfram útgefið leyfi til þess. Vísa þeim sem koma án slíks leyfis umsvifalaust til baka á ábyrgð og kostnað flutningsaðila sem kemur með viðkomandi aðila til landsins. Ekki flókið á eyjunni Íslandi. Er Ísland sjálfstætt ríki eða ekki ?
![]() |
Kemur ekki til greina að semja við ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.5.2024 | 10:08
Hljómar svolítið eins og Jóhanna.
Enda er Sjálfstæðisflokkurinn ekki lengur sá flokkur sem hann var heldur sama vinstrigrautargutlið og hinir. Mikið talað um að taka á útlendingamálum en umræðunni drepið á dreif og á meðan vex vandinn og er orðinn stjórnlaus.
![]() |
„Minn tími er ekki búinn“ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.5.2024 | 09:57
Óeirðaseggir með óspektir.
Fámenni með óspektir og hávaða í flugstöðinni. Hvers vegna var þetta lið ekki handtekið ? Upplagt að semda þá með hinum ef pláss hefur verið í vélinni.
![]() |
Mótmælt á Keflavíkurflugvelli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.5.2024 | 09:48
Gert upp á bak.
Svo þykjast stjórnvöld hafa fulla stjórn á þessu. Þau hljóta bara að vera staurblind. Lokið landamærunum og takið upp virkt eftirlit. Þeir sem ekki hafa fyrirframútgefið leyfi til landgöngu verði sendir strax til baka á ábyrgð og kostnað flutningsaðila.
![]() |
169 manns finnast ekki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.5.2024 | 13:05
Belgjum báknið út.
Ef áhugi er fyrir einhvers konar fyrirbæri í þessa veru mætti sætta sig við lítinn ATM þar sem pláss fengist ódýrt undir hann.
![]() |
Til skoðunar að opna sendiráð í Madríd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.5.2024 | 09:49
Brottfararstyrkir ?
Vitleysisgangurinn getur varla orðið meiri. Það á einfaldlega ekki að hleypa fólki inn í landið sem ekki hefur fyrirfram útgefið leyfi til landgöngu. Komi það án slíks leyfis á að gera flutningsaðila ábyrgan fyrir því að flytja viðkomandi til baka á þann stað sem hann kom frá að viðlögðum stórsektum. Taka þarf upp vegabréfaeftirlit á landamærunum og víða annars staðar er farþegum ekki heimild að fara um borð í flutningsfar nema færa sönnur á að hann hafi heimild til landgöngu á áfangastað. Það er löngu tímabært að þessar lyddur sem sitja í Gaukshreiðrinu á Austurvelli girði sig í brók og fari að vinna að því að alvöru að við Íslendingar fáum sjálfstæði okkar á ný. Það virðist gleymast að sjálfstæði þjóðarinnar fékkst ekki gefins þó einhverjir krakkar á þinginu og no borders fylgifé þeirra sem aldrei hafa unnið ærlega vinnu telji það lítilfjörlegt.
![]() |
Kostnaður meira en 100-faldast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.5.2024 | 16:17
Stærsta elliheimilið ?
Hvenær mun hún svo halda fund á stærsta elliheimili Íslendinga, þ.e. í Torrevieja ? Einhver nefndi við mig að um 4.000 íslenskir gamlingjar haldi þar til. Þar er því eftir einhverju að slægjast.
![]() |
Halla Hrund heldur kosningafund í Kaupmannahöfn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.5.2024 | 18:25
Einhverjir taki pokann sinn.
Það mætti td. byrja á að sparka þeim stjórnendum sem bera ábyrgð á klúðrinu og einnig hinum sem stefna einhverjum allt öðrum en skuldaranum til greiðslu til þess eins að valda félaginu enn meira tjóni.
![]() |
Isavia íhugar viðbrögð við sýknudómi Hæstaréttar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.5.2024 | 16:20
Verðfellt glingur.
Fjölmargir orðuhafar hafa fengið þetta glingur fyrir það eitt að mæta í vinnuna og jafnvel ekkert allt of vel. Dæmi eru um að sumir hafi fengið orðuna fyrir að pönkast á skattgreiðendum og misnota styrki frá ríkinu td. í Covid til að halda fólki á launum en samt haft það í blússandi verkefnum til eigin tekjuöflunar á sama tíma. Ef um væri að ræða einhverja alvöru orðu væri hún eingöngu veitt fyrir alvöru afrek eins og td. lífsbjörg.
![]() |
Kippur í skilum fólks á fálkaorðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.5.2024 | 16:07
Hugmyndaflug á heimsmælikvarða!
Það verður nú að taka viljann fyrir verkið hjá þessum snillingum sem stjórna Isavia. Ef þessi dómur hefði fallið Isavia í vil þá hefðu kröfuhafar vegna skulda í fasteignum getað stefnt nágrönnum skuldarans til greiðslu og gert lögtak í húsum þeirra bara fyrir þær einu sakir að búa í sömu götu og skuldarinn. Hjá Isavia er ekki ein báran stök. Allt sem kemur að þjónustu er rukkað fyrir upp fyrir rjáfur. Á Keflavíkurflugvelli er gjaldtaka fyrir bílastæði með þeim hætti að sé ferðast fyrir nokkra daga til útlanda þá borgar sig frekar að taka leigubíl af höfuðborgarsvæðinu en að geyma bílinn úti á velli. Svo hressilega er rukkað fyrir aðstöðu á vellinum að það er aðeins fyrir efnafólk að kaupa þar eitthvað að bíta og brenna. Reyndar er fóðrið á vellinum sem stendur til boða svo dapurt að flokka verður það með andafóðri í brauðformi. Ótrúlegt að ekki skuli vera hægt að bjóða þar upp á mat eins og td á Kastrup, Heathrow eða Gatwick. Klúðrararnir sem stjórna Isavia sitja sem fastast þrátt fyrir að valda félaginu sem er í eigu ríkisins stórtjóni. Mörgum er nú sparkað fyrir minna í einkageiranum. En þessi málarekstur sýnir að hugmyndaflugið er frjótt hjá snillunum, Sky is the limit!
![]() |
Isavia hlaut ekki meðbyr í Hæstarétti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Um bloggið
Örn Gunnlaugsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 3
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 19
- Frá upphafi: 130783
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 18
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar