Skóli lífsins.

Skóli lífsins, þ.e. er reynsla er einskis metin í dag. Nú skiptir öllu máli að vera með feitar gráður í einhverju huglægu sem engum er til gagns nema að hafa fyrst lært að vinna og öðlast skilning á hvað sé verðmætasköpun í raun. Flest nám er til góðs en gagnast engum sem aldrei hefur lært að vinna og áunnið sér reynslu. Segja má að góður starfsmaður og það á ekki síður  við stjórnendur verða aldrei að fullu gagni nema þeir hafi byrjað á kústinum. (Kústurinn fer nefnilega svo víða). Flestir bómullarhnorðrar þessa þjóðfélags sem hafa visku sína eingöngu upp úr bókaskruddum og af tölvuskjám skortir hins vegar þennan nauðsynlega undanfara. Arfaslakrar þjóðfélagslegrar framleiðni má fyrst og fremst rekja til þessa þáttar. Fjöldi manns sér ekki órjúfanlegt samhengi milli þess hvaða verðmætum vinna þeirra skilar og hvað kemur í launaumslagið. Í augum þessa fólks er samasemmerki milli starfs og vinnu. Þeir eru margir bómullarhnoðrarnir sem fá háar upphæðir í launaumslagið bara fyrir gráðurnar en langt umfram verðmætasköpun þeirra - og allt á kostnað hinna sem skapa hin raunverulegu verðmæti.


mbl.is Lilja vill að tækifærin séu til staðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óþolandi að þröngva aðild upp á fólk.

Það er óþolandi að fólk sé skikkað til aðildar að félögum sem það vill ekki vera í, hvort sem um er að ræða stéttarfélög eða einhvern annan félagsskap. Það á að vera sjálfsákvörðunarréttur hvers og eins hvor það er í einhverju félagi eða ekki. Hvað þætti fólki sem ekki nennir að skjóta hvítum kúlum út í loftið að vera skikkað til að greiða félagsgjald í einhvern golfklúbb?


mbl.is „Um grófar hefndaraðgerðir að ræða“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leikskólaprófið æðra!

Þetta sýnir fáranleikann í allri sinni dýrð. Stúdentspróf sem í dag er lítið meira en grunnskólapróf eða jafnvel leikskólapróf fyrir nokkrum áratugum er metið verðmeira en góð iðnmenntun með starfsreynslu. Ekkert er tekið með í reikninginn að þeir sem eru með iðnréttindi eða lært til verklegra starfa hafa þurft að skila starfstíma í sínu fagi áður en þeir fá sín iðnréttindi til að starfa í sínu fagi í framhaldi að námi loknu. Enda flytjum við inn Austantjalda í stórum stíl sem margir hverjir eru með þykjustupappíra sem sjá má á handónýtum mannvirkjum sem reist hafa verið hér frá því á árunum fyrir hrun. Eftirlitið með þessu er hjá hinum rasslærðu. Þeir sem lokið hafa eingöngu menntun á rassinn án þess að hafa komið nálægt ærlegri vinnu eru metnir verðmeiri og fá yfirleitt að hefja störf við það sem þeir lásu upp úr bókum án þess að hafa skilað einhverjum lærlingstíma. Háskólamenntaðir skrifa einhverja svokallaða ritgerð í lok námstíma sem enginn nennir að lesa en er einhvers konar aðgöngumiði að starfi burtséð hvort viðkomandi sé í raun hæfur eða ekki. En hverjir skyldu verðmeta þessa hluti með þessum hætti ? Jú þeir sem eru eingöngu lærðir á afturendann. Þrátt fyrir að sumt fólk sé nú að mennta sig nánast fram á grafarbakkann þá er fólk almennt séð ekkert betur að sér en áður, nema síður sé og gríðarleg þjóðfélagsleg hnignun hefur í raun átt sér stað síðustu ár. 


mbl.is Segir litið á iðnnám sem síðri menntun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ofmenntaðir á afturendann.

Íslendingar eru fyrst og fremst ofmenntaðir á afturendann en skortur er á menntun í þeim greinum sem snúa að verklegri vinnu. Því meira sem þjóðin menntast á rassinn því hraðari en hnignun hennar.


mbl.is Íslendingar ofmenntaðir í fiskveiðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í eigu íslendinga ?

Þetta verða skattaskjóls-skratta-skjóður. Allt skráð í skattaskjólum og skattar áhafnanna skila sér ekki til Íslands.


mbl.is Smíði er hafin á skipum Eimskips
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Örn Gunnlaugsson

Höfundur

Örn Gunnlaugsson
Örn Gunnlaugsson

Færsluflokkar

Júní 2018
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • ...p1011234

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 137
  • Sl. viku: 583
  • Frá upphafi: 116330

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 476
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband