Við hæfi ?

Við uppsteypu hússins munu væntanlega Austantjaldar vera fjölmennastir í vinnu. Er það vel við hæfi að þau störf séu unnin af aðilum sem ekki geta átt samskipti á því tungumáli sem húsið er kennt við.   


mbl.is „Hús sem við öll munum njóta góðs af“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á félagið möguleika ?

Telja einhverjir möguleika á því að þetta fyrirtæki lifi af í núverandi aðstæðum? Rekstur þess er undir járnhæl stéttarfélaga flugliða sem virðast róa öllum árum að því að veita því náðarhöggið. Landslagið er svolítið breytt frá því félagið var það eina sem flaug til og frá landinu. Stjórnendum félagsins hefur verið legið á hálsi fyrir að okra á farþegum sínum. Sé grannt skoðað þá hljóta fargjöld hjá félaginu að þurfa að vera talsvert hærri en hjá samkeppnisaðilum þess sem fljúga til og frá landinu á erlendum flugrekstrarleyfum. Himinn og haf er milli launakostnaðar þessa félags og erlendra samkeppnisaðila þess. Þar að auki hafa stjórnendur fyrirtækisins ekki leyfi til að svo mikið sem leysa vind öðru vísi en að biðja stéttarfélög starfsmanna í háloftunum um leyfi þó þeir sjálfir séu staddir á jörðu niðri. Þeir sem gagnrýna fyrirtækið fyrir okur ættu kannski frekar að beina spjótum sínum að stéttarfélögum flugliða, eða hlaupa til og kaupa hlutabréf í fyrirtækinu en þau eru nú á sögulega lágu verði þó ekki sé eins víst að það fari hækkandi í bráð.


mbl.is Gengi hlutabréfa Icelandair í frjálsu falli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að rústa eigin starfsstétt.

Flugliðar í stéttarfélögum sem starfa hjá félaginu vinna ötullega að því að gera sig atvinnulausa og þurka út flugrekstur á íslenskum flugrekstrarleyfum með yfirgangi sem vinnuveitandinn lætur enn yfir sig ganga. Bara launakostnaður þessara stétta hér á landi einn og sér er núþegar jafnvel margfaldur á við þau félög sem fljúga til Íslands á erlendum flugrekstrarleyfum. Þá hefur viðsemjandi þessara aðila látið kúga sig til að þurfa að biðja þessi stéttarfélög um leyfi fyrir ýmsu sem snýr beint að rekstri fyrirtækisins en kemur þessum stéttarfélögum ekkert við eins og td. að leigja inn vélar erlendis frá með áhöfnum. Þrátt fyrir að þessar stéttir fái óátalið að svikja stóran hluta launa sinna undan tekjuskatti þar sem hann er greiddur í formi tilhæfulausra ferðadagpeninga þá dugir það ekki til að jafna þann mun sem er á launum þessara aðila hér og starfssystkina þeirra erlendis. Það er til nákvæm uppskrift að því sem þessir flugliðar eru að matreiða hér en kaupskipaflota Íslendinga var útrýmt fyrir nokkrum áratugum vegna óbilgirnis stéttarfélaganna og tómlætis stjórnvalda. Fyrir aldarfjórðungi voru skráð kaupskip á Íslandi á mill 70 og 80 en nú er EKKERT orðið eftir. Það litla sem eftir varð af þeim stéttum sem höfðu lífsviðurværi af þessari atvinnugrein hrökklaðist til starfa hjá erlendum félögum oftar en ekki á lægri laun en voru hér heima. Í ÖLLUM tilvikum skilar sér ekki ein einast króna frá þessum aðilum í formi skatta til íslensks samfélags þó þeir nýti sér þjónustu þess. Þeir sem starfa á skipum Eimskips og Samskips eru í vinnu hjá erlendum félögum og engir skattar þaðan skila sér til Íslands. Nú ætla einhverjir flugliðar í mál við vinnuveitanda sinn væntanlega í þeim tilgangi að leggjast á árarnar við að veita honum náðarhöggið. Þegar vinnuveitandi þeirra hefur síðan lagt upp laupana verður byrjað á að grenja sig inn á atvinnuleysisbætur áður en þessir aðilar verða tilbúnir til að hlaupa í störf hjá erlendum aðilum fyrir brot af þeim launum sem þeir höfðu hér. Eru ekki örugglega allir að kaupa hlutabréf í vinnuveitanda þessara aðila? 


mbl.is Tengsl loftgæða og veikinda ekki fundist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Styttur 40 feta gámur.

Gámurinn sjálfur er reyndar 12 metrar sé hann 40 feta. Svo er bíllinn fyrir framan. En þetta er kannski bara stuttur 40 feta gámur sem verið er að vísa í ☺


mbl.is Selur 600 heita potta á ári
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viðbótarkostnaður að fara að lögum?

Það fylgir því viðbótarkostnaður að fara að lögum. Er þá ekki bara einfaldara fyrir þessa aðila sem ekki hafa efni á að fara að lögum að loka sjoppunni bara? Seðlar og mynt eru lögeyrir í landinu hvað sem einhverjum finnst um það.


mbl.is Taka ekki við peningum sem greiðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óbærilegur skítafnykur.

Það eina sem kemur í veg fyrir að allur skíturinn hjá WOW og þeirra sem dönsuðu með verði dreginn fram í dagsljósið er að skiptastjórar sjá sér ekki hag í að grafa svo djúpt þar sem lítið er hægt að mjólka út úr búinu í skiptakostnað. En auðvitað ætti að rannsaka það rækilega hvers vegna þessu var leyft að ganga svona langt og þá þarf að skoða hlut Isavia, Samgöngustofu og ráðuneyta og láta þá aðila sem bera ábyrgð á því sæta raunverulegri ábyrgð. WOW var ógjaldfært mörgum mánuðum áður en reksturinn var stöðvaður. Fjöldi fólks sá að staðan var vonlaus og þorði ekki að kaupa flug með þeim. En Isavia, Samgöngustofa og ráðuneytin sem komu að voru í afneitun fram í rauðan dauðann. Forsvarsmenn Isavia eru jafnvel enn í afneitun og segjast myndu gera þetta alveg eins aftur komi sú staða upp. Skítafnykurinn af WOW er algjörlega óbærilegur.


mbl.is Milljarðsgreiðsla til Skúla til skoðunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stöðva ætti starfsemi Creditinfo.

Yfirvöld ættu að grípa inn í og stöðva starfsemi Creditinfo. Hér er á ferðinni fyrirtæki sem tekur að sé að halda skrá yfir þá sem sagðir eru vera í vanskilum. Engu skiptir hvort þau vanskil sem skráð eru séu raunveruleg eða hreinn tilbúningur sem engin raunveruleg skuld er á bak við. Svo virðist sem hver sem er geti gefið út tilhæfulausan reikning og síðan er upplýsingum um vanskil miðlað til Creditinfo. Það er lágmark að meintur skuldari gangist við skuldinni áður en Creditinfo fái heimild til að þjófkenna fólk.


mbl.is Smálánaskuldir aftur skráðar hjá Creditinfo
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nær að kalla það OMG.

Miðað við lýstar kröfur í bú WOW vantaði 13.500,- upp á hvern miða til að klára það uppgjör. Oft er kröfum ofaukið verulega en telja má víst að margir hafi ekki séð ástæðu til að eyða tíma í að lýsa kröfum þar sem fyrirsjáanlegt er að forgangskröfur fást ekki einu sinni gerðar upp. Vonandi verður hið nýja WOW ef af verður skráð víðs fjarri Íslandi. Minningar um WOW verða Íslandi aldrei til framdráttar.


mbl.is Stefnir ótrauð á nýtt WOW
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glaumgosar og glæpamenn.

Hver er áhætta bankanna á að lána til íbúðakaupa? Allt tryggt á fyrsta veðrétti með beltum og axlaböndum! Það virðist ekki vera farið fram á jafnmerkilegar tryggingar þegar glaumgosar og glæpamenn banka upp á!! En þeir eru kannski í sömu stúku ?


mbl.is „Hefði mátt vanda betur til verka“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Örn Gunnlaugsson

Höfundur

Örn Gunnlaugsson
Örn Gunnlaugsson

Færsluflokkar

Ágúst 2019
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Nýjustu myndir

  • ...p1011234

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 715
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 519
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband