Færsluflokkur: Bloggar
16.8.2025 | 09:35
Umsókn um Seðlabankastjóra.
Þessi ummæli hans hljóma eins í eyrum og þegar núverandi Seðlabankastjóri kvakaði sífellt korteri fyrir hrun að allt væri í himnalagi. Kannski er þessi aðili að undirbúa sig undir að taka við í Seðlabankanum af núverandi snilla, hver veit ?
![]() |
Undirstöður hagkerfisins eru traustar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.8.2025 | 11:13
Skiptir það máli hvað bítur á ?
Prikveiðimenn sleppa hvort eð er öllu, skiptir þá nokkru máli hvort það er fiskur eða fugl sem bítur á, eða jafnvel minnkur ? Prikveiðimenn ættu kannski betur að fá að veiða í kerjunum hjá fiskeldisfyrirtækjunum og láta þá sem vilja nýta þau hlunnindi sem villti laxinn er í friði. Jón Kristjánsson fiskifræðingur hefur heldur betur sýnt fram á að þessi veiða og sleppa friðun gengur þvert á það sem henni var ætlað.
![]() |
Þetta er hræðilegt ástand |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.8.2025 | 11:04
Duty free okurverð.
Væri ekki nær að bjóða raunverulegt Duty free verð frekar en að eyða peningum í þessa firru ? Nú er svo komið að maður strunsar í gegn með hestasvip og snertir ekki á nokkru þarna vegna okurs.
![]() |
Ísjakar og íslenskt úrval á flugvellinum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.8.2025 | 09:51
Skóli lífsins.
EKKERT, Nei EKKERT kemur í staðinn fyrir skóla lífsins. Mörgum sem skóli lífsins reynist erfiður ætla að bæta úr með rassmenntun og páfagaukalærdómi. Fjöldi rassmenntaðra er svo mikill að búa þarf til störf (ekki vinnu) fyrir það fólk til að sýsla við og margt að því hefur engan tilgang eða gagnast nokkrum nema þeim sem lærðir eru á afturendann. Þetta er hins vegar allt á kostnað skattgreiðenda. Svo ofmetnast þetta lið í þéttri gráðuþoku sinni og finnst eðlilegt að það sé á margföldum launum við þá sem kunna og geta.
![]() |
Kerfisvæðing á kostnað verðleika |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.8.2025 | 10:41
Vilja hafa gamla háttinn á.
Lántakendur eru óþreytandi við að tala fyrir því að koma á sama kerfi og fyrir áratugum þegar verbólgan sá um að greiða upp lánin þeirra.
![]() |
Vaxtastefnan komin í algjöra sjálfheldu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
8.8.2025 | 10:38
311 manns að sýsla við hvað ?
Eftir því sem ég kemst næst með innliti á vefsíðu Seðlabankans eru þar 311 stöðugildi. Hvað er allt þetta fólk eiginlega að sýsla við ? Er það eitthvað sem skiptir máli ?
![]() |
Þessi sóttu um stöðu framkvæmdastjóra hjá Seðlabankanum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
6.8.2025 | 12:18
Fuglafóður.
Jón Kristjánsson er skeleggur á sínu sviði og ætti að taka meira mark á honum en hinum sjálfskipuðu sérfræðingum auðmanna sem dunda sér við að leika sér að matnum og sleppa honum svo í dauðateygjunum. Dýraníðingarnir skilja bráðina eftir oftar en ekki svo örmagna að fugl á greiða leið að því að ljúka verkinu og gera sér veislu úr. Þetta má sjá árbökkum þar sem bráðinni er sleppt eftir að henni hefur verið strokið eins og kettlingum og montmyndatökum lokið. Einhverjar aðrar breytur valda breytilegri stofnstærð og Jón hefur áður bent á samhengi í því sambandi.
![]() |
Segir árangurslaust að veiða og sleppa laxi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.8.2025 | 17:59
Hvernig bragðaðist hann?
Var hann reyktur, grafinn eða bara eldaður í ofni?
![]() |
Laxinn reyndist 69% af hennar hæð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.7.2025 | 09:00
Auðsholt í Ölfusi og Auðsholt í Hrunamannahreppi.
Um sitthvort Auðsholtið er að ræða þó ekki virðist gerður greinamunur í fréttaumfjöllun. Annað við Ölfusá og hitt við Hvítá. Þá ætti nú vera tilefni til gerð sérstakrar þáttaraðar um hegðun leigutaka Stóru-Laxár á svæðinu sem ekki er til fyrirmyndar. Þegar öllu er á botninn hvolft snýst þetta alls ekki um vernd laxastofnsins heldur aðeins um peninga auðmanna. Þá ættu þeir aðilar sem vilja láta sig málið varða skoða hvað gerst hefur mörg undanfarin ár með minnkandi sókn í laxinn og samhenginu þar. Jón Kristjánsson fiskifræðingur hefur verið duglegur við að benda á þetta en hans athugasemdir virðat ekki hafa náð inn í klúbb auðmannanna.
![]() |
Færri net í Ölfusá Sigur fyrir laxinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.7.2025 | 08:50
Upp með krókana - Dýraníðingar.
Auðmennirnir vilja fá að halda dýraníði sínu áfram og til að auka hag sinn vilja þeir að bændum verði bannað að nýta hlunnindi sín . Þar sem undirritaður þekkir til hefur laxagengd síður en svo verið lakari í ár en undanfarin ár, amk. er veiði þar talsvert meiri það sem af er sumri en á sama tímabili síðustu ár. Þó að fiskurinn sjái við brellum prikveiðimanna sem reyna að narra laxinn á króka sína til þess eins að njóta þess að hann engist á hinum enda línunnar er ekki endilega mælikvarði á laxagengd. Nær væri að banna dýraníð prikveiðimanna þannig að fiskurinn eigi ekki á hættu að verða fyrir pyndingakrókum prikaranna þegar hann syndir um. Mannskepnan sem og aðrar skepnur hafa hins vegar veitt sér til matar gegnum tíðina og ekki ástæða til að ætla að það muni breytast. En það mætti banna með lögum að leika sér að matnum.
![]() |
Sölubann, sleppiskylda og upp með netin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Örn Gunnlaugsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.8.): 85
- Sl. sólarhring: 86
- Sl. viku: 399
- Frá upphafi: 132272
Annað
- Innlit í dag: 65
- Innlit sl. viku: 301
- Gestir í dag: 65
- IP-tölur í dag: 65
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar