Færsluflokkur: Bloggar

Það þarf að hafa ykkur í stuttum taumi.

Þarna fer forstjóri eins af stóru byggingaverktökunum mikinn. Nánast öll þessi stóru fyrirtæki ma. það sem hér um ræðir beitir verulega óþverralegum aðferðum til að hagnast. Þau semja við undirverktaka um stóra verkþætti vitandi það að margir þessarra undirverktaka bjóða í þá verkþætti með þann einbeitta brotavilja að ætla alls ekki að skila vörslusköttum af verkum sínum. Þannig undirbjóða þessir undirverktakar þá sem berjast við að skila því sem þeim ber en eru af þeim sökum ekki samkeppnisfærir. Glæpamennirnir sem vinna í undirverktöku fyrir þessi stóru verktakafyrirtæki skipta svo þýfinu með skúrkunum sem ráða þá, þ.e. þá sem dæla súrefni til þeirra og halda þeim þannig í rekstri. Bæði skúrkarnir og glæpamennirnir vita það að enginn verður settur í fangelsi fyrir gjörningana og því heldur þessi brotastarfsemi áfram og vex eins og blómstrið eina. Þessir aðilar eru jafnvel með stór verkefni fyrir opinbera aðila þar sem margdæmdir glæpamenn eru undirverktakar. Skúrkarnir sem ráða glæpamennina til undiverktöku geta ekki falið sig bak við að hafa ekki vitað betur því þetta er öllum ljóst. Stórt verktakafyrirtæki er með eitt stærsta verkefni síðari tíma í verktöku fyrir ríkið, Nýjan Landspítala. Sá verktaki er með glæpamann í undirverktöku sem skilið hefur eftir sig slóð gjaldþrota og hefur verið dæmdur fyrir skattsvik, þ.e. þjófnað á vörslusköttum. Yfir þessu verkefni er svo framkvæmdastjóri á vegum ríkisins, fyrrum Samfylkingarþingmaður sem tekur þátt í óþverrahættinum með því að halda hlífðarshjálmi yfir þessu hyski. Þrátt fyrir að honum hafi verið gert rækilega ljóst hvernig í pottinn er búið aðhefst hann ekki til að sporna gegn þessu. Nei svona fólk kann ekki að skammast sín og mun sennilega aldrei öðlast samvisku til að læra það. Svona hyski þarf allt að vera í taumi og það mjög stuttum.


mbl.is „Eigum við ekki bara að byrja með autt blað?“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innflytjendakúrinn...

...gæti þessi megrunarkúr kallast. Það þarf þá tæplega fóður á kostnað skattgreiðenda á meðan. Hvers vegna var þeim hleypt inn í landið ?


mbl.is Efna til hungurverkfalls í tjöldum í Hafnarfirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig væri.....

að hleypa þeim bara ekki inn í landið ? Gera flutningsaðila ábyrgan fyrir að koma þeim til baka sem ekki hafa fyrirfram útgefin leyfi til að koma.


mbl.is Ísland í samvinnu við að koma innflytjendum úr landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dagur ofstækisfemínista...

Nú telja þær sig vera með einkaleyfi á þessum degi. Það er bara alls ekki langt í land varðandi jafnrétti og launajöfnuð. Berið samn laun í sömu starfsgrein. Karlar fara nú frekar orðið halloka á vinnumarkaði og líða þannig fyrir kyn sitt.


mbl.is „Plís, elsku vinir. Látið þennan dag í friði“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skakkur útreikningur.

Og hvernig er niðurstaðan með 21% fengin. Jú það eru tekin meðallaun hvors kyns án tillits til starfsgreina og þá fæst þessi mynd af þessu sem er í raun kolröng. Nálgast mætti raunveruleikann með því að miða við miðgildi sem þó yrði heldur ekki rétt. Til að fá rétta mynd þarf að skoða þetta eftir starfsgreinum en við skulum hafa í huga að nú er að finna bæði kynin í öllum starfsgreinum. Þá birtist niðurstaða sem er í kringum núllið.


mbl.is „Vanhæfir þjónar“ hlaupa í störfin á kvennafrídaginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef......

karl væri forsætisráðherra væri hann með hærri laun ? Hverju er þá verið að mótmæla ?


mbl.is „Ég mun leggja niður störf“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Persónuvernd NFF21.

Slíkur listi hlýtur að brjóta í bága við persónuvernd. Ökuníðingar geta fengið nafnleynd hjá Umferðarstofu og þannig komist upp með skemmdarverk og valda samborgurum sínum stórhættu í umferðinni án þess að hægt sé að hafa uppi á þeim. Lögreglan og Umferðarstofa verja þessa skúrka með kjafti og klóm. Hvers vegna á að heimila nafnbirtingu á þeim sem neita að greiða starfsmönnum laun fyrir að skrópa í vinnunni ?


mbl.is Birta lista yfir þá sem hamla þátttöku í kvennaverkfallinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tilgangurinn ?

Kvennaverkfallið hefur verið matreitt á þann hátt að sé til að minna á mikilvægi starfa kvenna. Ekki er um að ræða hefðbundna kjarabaráttu þegar samningar eru lausir. Þetta er orðið barn síns tíma og algjörlega úr takti við tíðarandann í dag. Reyndar eru öll störf mikilvæg því ef einn hlekkinn brestur þá slitnar keðjan. Hvaða dagur verður tekinn frá fyrir karlaverkfall til að minna á mikilvægi starfa þeirra sem eru reyndar í síauknum mæli unnin af konum ? Nú til dags eru bæði konur og karlar í öllum störfum. Eiga þeir karlar sem ofstækisfemínistar vilja meina að séu í kvennastörfum líka að leggja niður störf í kvennaverkfalli?


mbl.is Verkfallið mun hafa veruleg áhrif
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Örn Gunnlaugsson

Höfundur

Örn Gunnlaugsson
Örn Gunnlaugsson

Færsluflokkar

Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • ...p1011234

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.8.): 97
  • Sl. sólarhring: 98
  • Sl. viku: 447
  • Frá upphafi: 132611

Annað

  • Innlit í dag: 88
  • Innlit sl. viku: 369
  • Gestir í dag: 86
  • IP-tölur í dag: 83

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband