Færsluflokkur: Bloggar
13.5.2023 | 09:41
Árshátíð athyglissjúkra furðufugla.
Það ætti að vera búið að breyta nefni þessarar svokallaðrar söngvakeppni fyrir löngu síðan. Lítið orðið evrópskt við hana þó Evrópulönd séu með og svo virðist fíflagangurinn vera mikilvægari en tónlistin sjálf. Andfætlingar skipa orðið stóran sess og svo er fjöldi Langtíburtistan landa utan álfunnar með menningu sína aftan úr steinöld þátttakendur. Evrópa hefur bara aldrei verið svona stór.
![]() |
Selenskí fær ekki að ávarpa Evrópu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.5.2023 | 09:11
Að stíga í vitið...
er eitthvað sem stjórnendur Isavia virðast ekki kunna. Krafa Isavia er álíka gáfuleg og ef sveitarfélagið sem þú býrð í krefst uppboðs á húsi þínu vegna skuldar nágranna þíns.
![]() |
Isavia missir af milljörðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.5.2023 | 10:18
Gerðu eins og ég segi.......
ekki eins og ég geri. Þetta fólk hlýtur að vera almenningi fordæmi í baráttunni gegn hinni svokölluðu loftslagsvá. Hefði ekki verið nær að smala öllum saman til Brussel í eina Hercules vél ? Eða bara sleppa fíflaganginum og halda þessa samkomu gegnum fjarfundabúnað ? Svo mikið er víst að jarmið sem fram mun fara mun ekki skila almenningi nokkru og jafnvíst er að hinn almenni skattgreiðandi vill að sköttunum sé varið í annað en svona prúðuleikhús.
![]() |
Leiðtogarnir hafa sameinast í 26 einkaþotur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.5.2023 | 12:20
Varúð !
Enginn hætta á ferðum ! Korteri fyrir fall bankanna 2008 lét þessi sami aðili orð falla sem vert væri að rifja upp. Hve gott er minni manna ?
![]() |
Bankar fjármagna sig með veðum í fasteignum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.5.2023 | 10:10
Erfðaprinsinn.
Þetta er bara eins og hjá Kalla í Bretlandi, gengur í erfðir. Framsóknarflokkinum hefur reyndar gengið illa í sögunni að sniðganga vini og ættingja. Öðrum flokkum hefur lánast betur að fela svona gjörninga þó ekki þurfi alltaf að grafa djúpt til að sóðaskapurinn komi fram í dagsljósið.
![]() |
Sonur Sigurðar Inga ráðinn skrifstofustjóri Framsóknar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.4.2023 | 15:42
Stoltur fjórflokkurinn.
Þeir hika ekki við að láta birta myndir af sér forystumenn stjórnarflokkanna, brosandi fyrir framan eina stærstu ríkisframkvæmd sem nú stendur yfir. Þrátt fyrir að vera upplýstir um að aðalverktakinn sé með stórglæpamann og skattsvikara í undirverktöku við stóran þátt uppsteypunnar sem ætti í raun að sitja í fangelsi ef dómum væri fylgt eftir skella þeir skollaeyrum við. Framkvæmdastjóri verkefnisins er svo fyrrum þingmaður Samfylkingarinnar og tekur þátt í að dæla súrefni til þeirra sem ætti í raun að halda frá allri atvinnustarfsemi. Fjórflokkurinn er samur við sig og er alveg örugglega sammála um að líða eigi mönnum skattsvik og glæpastarfsemi. Margt mætti nú gera við það fé sem þessum aðilum er leyft að stela frá samborgurum sínum. Ekki verður annað séð en að skattgreiðendur sitji uppi með Svarta - Pétur í ljósi tómlætis ráðamanna.
![]() |
210 milljarða króna fjárfesting |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.4.2023 | 16:03
Bruðl.
Hvers vegna þessi íburður á dýrasta stað í bænum ? Bankaviðskipti eru að mestu komin á netið og fara því fram í "skýinu". Hefði ekki nægt einföld bygging ódýr í framkvæmd á Hólmsheiði ?
![]() |
Sjáðu nýjar höfuðstöðvar Landsbankans |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.4.2023 | 18:59
Gullfyllingarnar.
Viljið þið ekki líka ná í gullfyllingarnar úr tönnunum okkar áður við erum grafin ?
![]() |
Segir erfðaskattinn sanngjarnastan allra skatta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.4.2023 | 21:17
Hvort var það.....
Flæðir undan fögru skinni......eða flagð er undir fögru skinni... nema hvoru tveggja sé ?
![]() |
Sakar Eddu Falak um ritstuld |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.4.2023 | 08:41
Lengi tekur sjórinn við...
Til þessa orða hefur oft verið gripið. En á þeim tímum sem við lifum er etv. meira viðeigandi að tala um að sú galtóma kanínuhola sem ríkissjóður er gefi endalaust. Hér er um að ræða skúrka sem stofna til vonlauss reksturs og þegar allt er komið í þrot er skattgreiðendum sendur reikningurinn.
![]() |
Óvissa vegna Torgs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Örn Gunnlaugsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.5.): 3
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 28
- Frá upphafi: 129916
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 23
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar