Færsluflokkur: Bloggar

Hver borgar fyrir gaufið ?

Skv. útboðslýsingu átti verkinu að vera að fullu lokið í september 2022 en annan eins gaufaragang hefur maður ekki horft upp á lengi við brúarsmíði. Ber verktakinn sem átti að vera búinn að ljúka verkinu fyrir 4 mánuðum síðan kostnaðinn við að rjúfa veginn og koma honum í sama horf aftur ? Eða er handvömm um að ræða hjá opinberum aðilum sem skattgreiðendur fá að punga út fyrir ?


mbl.is Grafa í sundur veginn vegna vatnavaxta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

18 ára verður skyndilega 109 ára.

Mikil ósannindi eru í þessari frétt. Það Eimskip sem fæddist 1914 dó í efnahagshruninu og náði því ekki 100 ára afmælinu. Það hét Eimskipafjelag Íslands hf. Eimskip Ísland ehf er hér með stolnar fjaðrir en það fæddist þann 2. nóvember 2004 undir nafninu Skipaafgreiðsla Suðurnesja ehf. Eimskip er því ekki nema 18 ára í dag og ekki einu sinni komið á brennivínskaupaaldurinn. Það hefur því enginn náð 25 ára starfsaldri hjá því fyrirtæki sem hér um ræðir.


mbl.is Eimskip fagnar 109 árum í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Yaris á stærri dekkjum.

Jeppi er ekki jeppi nema hann sé jeppi. Þetta er ekki jeppi, bara yaris á stærri dekkjum.


mbl.is Kynna nýjan alrafmagnaðan lúxusjeppa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Félagafrelsi!

Á Íslandi er félagafrelsi í orði en ekki á borði. Ef félagafrelsi væri í raun þá hefði fólk frelsi til að vera í hvaða félagi sem væri eða standa algjörlega utan félaga. Best sést í atkvæðagreiðslum hjá verkalýðsfélögunum sá fjöldi sem eru félagar viljugir. Hinn hlutinn sem er í flestum tilvikum mun stærri partur þeirra sem teljast félagar eru þá nauðbeygðir og skikkaðir til að greiða í félög sem þeir hafa ekki óskað eftir að vera meðlimir í. Ofstækisfólkið stillir þessu gjarnan upp sem ,,,við og hinir,,, en áttar sig ekki á að á endanum fara hagsmunir beggja saman. Það eru ekki allir vinnuveitendur vondir þó innan um leynist skemmd epli eins og alls staðar, jafnvel líka hjá Eflingu sem hefur reyndar komið á daginn.


mbl.is Uggandi félagsfólk Eflingar í pattstöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alþjóðlegur glamúr ???

Merkilegheitin ríða ekki við einteyming þarna. Reksturinn er allur háður leiguvélum og því er þetta ekki flugfélag í þeim skilningi, heldur flutningsmiðlun sem selur pláss í flutningsförum annarra. Það háir mér hins vegar ekki þó starfsfólkið væri allt mállaust um borð, einu sinni er nóg eins og það nægði líka með fyrirrennara þessa glamúrs. Við erum svo lánsöm að nokkur FLUGFÉLÖG fljúga til og frá landinu.


mbl.is Íslenskan í aftasta sæti hjá Play
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útvarp Væll og Grátur.

Margur á hættu á að verða illa hugsandi og þunglyndur á að hlusta of mikið á sumar útvarpsstöðvar, hentar kannski tímabundið þeim sem eru hyper-glaðir. Félagi minn sagði mér af því fyrir nokkrum árum að nágranni hans hafi selt bíl sem hann varð að taka til baka vegna galla. Útvarpið var víst fast á ónefndri útvarpsstöð sem ég þori ekki að nefna hér og ekki hægt að slökkva nema að drepa á bílnum. En nú hlusta jafnvel gamlingjar á mínum aldri ekki lengur á útvarp, þeir velja bara eitthvað létt og gott af Spotify og láta allt dægurþras lönd og leið, nema helst til að grínast með það. Svili minn í sveitinni sem er reyndar ögn eldri missir hins vegar aldrei af Sprengisandi og er alveg uppveðraður af (fá)viskunni sem flæðir þar í hverjum þætti.


mbl.is Vill leggja niður nefskatt til RÚV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég líka.

Ég vinn líka heima og að heiman og geri stundum gagn. Ég hef samt ekki fengið útborgað lengi. Hvert get ég eiginlega leitað ?


mbl.is Fengu að vinna heima á milli jóla og nýárs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sáttaferli ?

Er hægt að fara í sáttaferli fyrir að brjóta af sér ? Á ekki að refsa glæpamönnunum ? Ég keyrði 20 km yfir hámarkshraða um daginn, í staðinn lofa ég að keyra jafnlengi 20 km undir hámarkshraða og málið dautt ! Það er svona sáttaferli, eða þannig sko....


mbl.is Ætla ekki að tjá sig fyrr en sáttaferli lýkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En þarf 4 - 6 ára háskólanám ?

Þessi laun eru engin rausn séu þau borin saman við laun ómenntaðra mállausa þræla austantjaldslandanna sem fluttir eru hingað til lands til að vinna þau störf sem landinn telur sig of fínan í. En þarf ekki líka að spyrja hvort 4 - 6 ára háskólanám sé nauðsynlegt ? Þarf jafnlangt háskólanám til að gæta smákrakka á barnaheimilum ? Reyndar hefur barnaheimili verið fíníserað í leikskóla svo líti út eins og einhver kennsla fari þar fram að ráði. Missir sá mikið úr sem tekinn er í burtu á miðri önn til að verða samferða foreldrum sínum til útlanda á ferðalögum ?


mbl.is „Hún spyr hvað er nóg, þetta er ekki nóg“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvort vilt þú skattgreiðandi.....

að skattarnir fari í að efla heilbrigðiskerfið svo það sé betur í stakk búið til að bjarga lífi þínu og/eða auka lífgæði þín EÐA að þeir fari i gæluverkefni til td. styrktar einkafjölmiðlum og listamannabóta svo útvalinn hópur geti einbeitt sér að hugðarefnum sínum ? Hér er aðeins tvennt nefnt en tæmandi listi yrði býsna langur jafnvel áður en tekið yrði á að leggja niður fjölmargar tilgangslausar ríkisstofnanir. Hinir hávaðasömu sem ekki borga skatta en heimta hvað mest af gæluverkefnum þurfa ekkert að velta þessari spurningu fyrir sér af augljósum ástæðum.


mbl.is Segir rugl að spítalinn sé ekki vanfjármagnaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Örn Gunnlaugsson

Höfundur

Örn Gunnlaugsson
Örn Gunnlaugsson

Færsluflokkar

Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • ...p1011234

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.8.): 39
  • Sl. sólarhring: 41
  • Sl. viku: 470
  • Frá upphafi: 132657

Annað

  • Innlit í dag: 32
  • Innlit sl. viku: 391
  • Gestir í dag: 30
  • IP-tölur í dag: 30

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband