2.10.2018 | 23:26
Handónýt yfirvöld.
Þetta hefur viðgengist í mörg ár og versnar bara. Eftirlitsbáknið þenst út en einungis í þeim tilgangi að þeir sem þar starfa eru áskrifendur að laununum sínum. Byggingabransinn er sérlega slæmur og virðast ferðaþjónustuaðilar fylgja fast á eftir. Kolsvört atvinnustarfsemi á báðum stöðum. Framkvæmdastjóri SA var í viðtali í sjónvarpinu í kvöld og staðfesti með svörum sínum að hann væri bæði blindur og heyrnarlaus. Það er sama hvar borið er niður, hjá Vinnumálastofnun, Vinnueftirlitinu, skattyfirvöldum, jú öllu sem er á ríkisjötunni - enginn yrði var við þó allt þetta hyski yrði rekið á einu bretti og heila klabbið lagt niður í allri sinni dýrð. Svo taka fyrirtæki sem hvítþvo sig sjálf þátt í svindlinu með viðskiptum við skúrkana og bera fyrir sig að þau hafi bara ekki vitað neitt - en til að hafa ekki tekið eftir neinu þarf augljóslega alveg sérstaka hæfileika. Á meðan blæðir svo þeim út sem sannanlega vilja gera allt samkvæmt lögum og reglum en eðlilega eru þeir að deyja út. Er svo einhver hissa á að erfitt sé orðið að fá Íslendinga til að starfa í þessum greinum - þó mikill fjöldi sé á atvinnuleysisbótum?
![]() |
Í sömu gildru og hundruð annarra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.10.2018 | 12:58
Sprenglærðir snillingar.
Þrátt fyrir að í bankanum séu sprenglærðir snillingar á ofurlaunum í alls kyns fjárstýringum og áhættugreiningum rekur hvert áfallið annað. Hve mikið ætli bankinn eigi hjá öðrum "playboy" í þessum bransa sem tapast þegar sú svikamylla hrynur? Það er margur ómenntaður kotbóndinn sem er greinilega hæfari í svona fjárglæfrastarfsemi en srákarnir (og stelpurnar) á stuttbuxunum.
![]() |
Arion tapar háum fjárhæðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 2. október 2018
Um bloggið
Örn Gunnlaugsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.5.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 25
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 22
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar