Leggjum þessa sukksjóði af.

Þó ég sé nú ekki mjög kommúnískur í hugsun þá hef ég eftir að ég hef kynnt mér betur starfsemi lífeyrissjóðanna færst nær því að ríkið eigi að yfirtaka lífeyrissjóði landsins og nýta fjármunina til uppbyggingu innviða. Ávöxtun langflestra sjóðanna til lengri tíma er daprari en ef peningarnir væru geymdir á bankareikningi. Innan við þriðjungur þess iðgjalds ( þ.e. eingöngu framlag launþega) sem fólk er að greiða í dag myndi nægja ríkinu til framtíðar til að greiða svo út þann lífeyri sem verið er að greiða í dag en útgreiðslum þyrfti að breyta þannig að við eftirlaunaaldur yrði greidd út sama tala á haus óháð því hvaða laun viðkomandi hafði á starfstíma. Skylduaðild að lífeyrissjóðum er tímaskekkja. Ég verð tilbúinn við dyrnar hjá Frjálsa á sextugsafmælinu mínu til að forða öllu frá þeim sem ég má, jafnvel þó ég þurfi að greiða 40% í skatt af því.


mbl.is Tryggja að stjórnir séu alveg sjálfstæðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hróp af fæðingardeildinni.

Fyrsta orðið er ekki lengur "mamma" heldur er búið að heilaþvo stóran hóp landsamanna með þeim hætti að mótmælaspjöld fá hvítvoðungarnir nánast í vöggugjöf með þeim kröfum að inn í landið eigi að hleypa ÖLLU sem hingað sækir burtséð frá því hvort það framfærir sig sjálft eða fer beint á jötuna eins og oftast er raunin. Ekki ætla ég að segja til um hvað á við í þessu einstaka máli. En er ekki sjálfsagt að verða við óskum þeirra sem eru að mótmæla brottvísun og vilja taka við öllu sem hingað leitar ? Þeir gangast bara fyrst sjálfir í persónulega sjálfskuldarábyrgð eftir að hafa farið í gegnum greiðslumat fyrir því að halda viðkomandi innflytjendum uppi til að tryggja að þeir verði ekki fjárhagslegur baggi á skattgreiðendum. Ekki væri úr vegi að þeir ábyrgðust einnig gjörðir þeirra að öllu leyti meðan þeir dvelja í landinu.


mbl.is Mótmæla „algjöru rugli“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 5. júlí 2019

Um bloggið

Örn Gunnlaugsson

Höfundur

Örn Gunnlaugsson
Örn Gunnlaugsson

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...p1011234

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 715
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 519
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband