5.4.2020 | 17:17
Á dauða mínum átti ég von.....
en að tryggingafélagið hefði frumkvæði að slíkum gjörningi. Ég hefði sennilega ekkert kippt mér upp við að sjá fréttina ef hún hefði birst 1. apríl. Ég er búinn að klípa mig aftur og aftur og vakna bara alls ekki upp úr þessum draumi. Nú er ég farinn að trúa því að fólk innan fjármálageirans sé mannlegt og eigi til samkennd. Ég verð að hrósa Sjóvá fyrir þetta, hef reyndar fundist í gegnum tíðina hagstæðast að vera tryggður hjá þeim. Nú bíð ég spenntur eftir að bankarnir taki við sér og sýni samkennd í verki. Ég bendi á að meðan innlánsvextir á óbundnum debetreikningum eru 0,05% þá eru útlánsvextir á sama reikning 9,5%. Það er 19.000 prósent álagning á fé sem bankarnir höndla með í umboði innlánseigenda.
![]() |
Sjóvá lækkar iðgjöld bílatrygginga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bloggfærslur 5. apríl 2020
Um bloggið
Örn Gunnlaugsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.6.): 14
- Sl. sólarhring: 53
- Sl. viku: 127
- Frá upphafi: 130899
Annað
- Innlit í dag: 12
- Innlit sl. viku: 105
- Gestir í dag: 12
- IP-tölur í dag: 12
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar