Vantar skilninginn.

Það vantar greinilega skilning fyrir því að til að standa undir lúxuskjörum flugstéttanna þá þarf viðskiptavinurinn að borga meira fyrir flugmiðana en hjá öðrum. Það er bara ekki að fara að gerast. Að mati ASÍ er því betra að viðhalda óraunhæfum kröfum, setja félagið í þrot og tapa störfunum frekar en að horfast í augu við raunveruleikann og sætta sig við þau kjör sem bjóðast hjá samkeppnisaðilunum. En þetta er vandinn, það má ekki segja hlutina hreint út.


mbl.is Segir bréfaskrif Boga einstaklega ósvífin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sælt er sameiginlegt skipbrot.

Viðhorfið virðist vera að sælli sé sjálfseyðing en að gefa eftir óraunhæfa skilmála til að bjarga félaginu og þar með störfunum. Skrýtið hvað fólk er svo tilbúið til að vinna fyrir lakari kjör í útlöndum þegar búið er að eyðileggja allt heima. Ég óska þessu fólki bara velfarnaðar í störfum í framtíðinni hjá Rayanair og álíka félögum. Það verður offramboð af flugvélum og flugfólki þegar ferðamennskan fer aftur af stað. Og allir reyna að koma sínum flota í vinnu, hvar sem er í heiminum.


mbl.is Icelandair krefst launa- og réttindaskerðingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Víst er það grafalvarlegt.

Það er grafalvarlegt ef ekki næst að koma vitinu fyrir félagsmenn flugstéttanna þannig að þeir láti af frekju og yfirgangi. Stéttafélögin geta ekki fengið að stjórna félaginu og svo þarf að laga kjör flugfólksins að því sem gerist hjá samkeppnisaðilunum erlendis. Ágætt væri að fella skattsviknu dagpeningana inn í hefðbundin laun í leiðinni og vera þá á pari við það sem gerist hjá öðrum launamönnum í landinu. Þetta fólk virðist því miður ekki vera að ná áttum. Sjálfseyðingarhvötin getur verið býsna sterk hjá fólki. Ég hélt nú reyndar að fólk þyrfti að setja eitthvað í nefið á sér til að sýna svona dómgreindarleysi, en einhverjir virðast bara vera svona natural.


mbl.is „Þetta er grafalvarlegt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru þið að fatta það ?

Flugstéttirnar ættu að skoða söguna vel, það gæti bjargað þeim frá sjálfseyðingu. Kaupskipaútgerð á Íslandi lagðist af með öllu vegna óbilgirnis og þvergirðingsháttar  stéttarfélaga farmanna fyrir mörgum árum. Vélstjórafélagið sýndi þó mest allra félaga skilning á þeirri þróun sem var að eiga sér stað og vildi aðlagast til að bjarga þeim störfum sem bjarga mátti. Félög skipstjórnarmanna, bæði Stýrimannafélagið og Skipstjórafélagið öðlaðist smám saman skilning á stöðunni og tók sér afstöðu vélstjóranna til fyrirmyndar. Eftir stóð þá stéttarfélag undirmanna á farskipum sem á þessum tíma var Sjómannafélag Reykjavíkur og þvergirðingsháttur og heimska þeirra sem þar réðu ríkjum varð til þess að kaupkipafloti Íslands sem taldi þegar mest var eitthvað nálægt sjötíu skipum flýði land. Eða öllu heldur, erlendir samkeppnisaðilar yfirtóku viðskiptin og langstærstur hluti starfana hér heima glataðist. Flugstéttirnar hjá Icelandair telja sig yfir allt og alla hafna, stéttarfélög þeirra eigi að vera á launakjörum langt umfram það sem gerist hjá samkeppnisaðilum erlendis sem boðið hafa upp á flug til og frá Íslandi Þessar stéttir telja sig jafnframt eiga rétt á að ráðskast með hvernig félaginu er stjórnað, finnst td. eðlilegt að þau séu spurð álits ef leigja á vél inn í reksturinn eða semja við önnur félög um að fljúga fyrir félagið. Þessar sömu flugstéttir hafa svo þar að auki í áratugi búið við friðhelgi fyrir skattsvikum vegna mikils hluta launa sinna. Stór partur launa flugfólksins er greiddur sem ferðadagpeningar sem ekki eru notaðir til greiðslu ferðakostnaðar en þar fyrir utan er venjulegur vinnustaður þessarra stétta flugförin sjálf. Með vitund og vilja stjórnvalda eru þessar greiðslur sviknar undan tekjuskatti. Þeir sem komist hafa upp með að fara offari í frekju og yfirgangi eiga til að gleyma sér í sjálfsánægju sinni yfir að vera búinn að ná hreðjataki á þeim aðila sem hann hefur náð að kúga með þessum hætti um langan tíma. Og slíkt endar oftar en ekki með því að þeir koma sér sjálfir, algerlega óstuddir út í horn þar sem þeir verða auðveld bráð fyrir þá sem sæifellt leita sér tækifæra til að komast af. Það er algjörlega á hreinu að fjármagnseigendur sem annt er um aurana sína setja ekki krónu í óbreytt fyrirkomulag hjá félaginu og það er ekki verjandi að stjórnendur lífeyrissjóðanna hendi meiri peningum almennings í þessa botnlausu holu bara til að dekra við þá púðurrassa sem starfa um borð í vélunum. Það er líka óverjandi að stjórnvöld hendi peningum skattgreiðendi í svona dekurverkefni. Ef flugfólkið vill ekki láta af óstjórnlegri frekju þá verður bara að láta félagið í friði og leyfa því að fara á hausinn. Við komumst af án eigin kaupskipa og munum spjara okkur ágætlega þó eins fari fyrir millilandafluginu. Þar sem viðskiptatækifæri eru til staðar koma ávallt inn nýjir aðilar, en bara á réttum forsendum.


mbl.is Samningar liggi fyrir 22. maí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 10. maí 2020

Um bloggið

Örn Gunnlaugsson

Höfundur

Örn Gunnlaugsson
Örn Gunnlaugsson

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...p1011234

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.6.): 15
  • Sl. sólarhring: 30
  • Sl. viku: 128
  • Frá upphafi: 130900

Annað

  • Innlit í dag: 13
  • Innlit sl. viku: 106
  • Gestir í dag: 13
  • IP-tölur í dag: 13

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband