Verkalýðshreyfingin taki reksturinn yfir.

Er ekki bara rétt að verkalýðshreyfingin taki rekstur Icelandair yfir og semji svo við sjálfa sig um kaup og kjör? Það virðist ekki þurfa að taka tillit til samkeppnishæfni hjá þeim. Lífeyrissjóðina ætti að leggja hreinlega niður enda kemur bersýnilega í ljós hvernig þetta er allt farið í bíta í skottið á sér. Greiðslur í lífeyrissjóði í dag er hrein og klár skattlagning þar sem útgreiðslur skerða framlög frá TR á móti, nokkuð sem þegnarnir hafa áunnið sér sem skattgreiðendur í landinu á búsetutíma.


mbl.is Meta þurfi stöðu æðstu stjórnenda Icelandair
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ætlar verkalýðshreyfingin að borga það sem upp á vantar ?

Siggi smiður og Gummi smiður komu hvor með sitt tilboðið til mín. Er mér þá ekki frjálst að semja við hvorn þann sem mér sýnist og væntanlega þann sem er mér hagstæðari? Icelandair og önnur fyrirtæki skulu samt bundin af því að semja aðeins við einn aðila sama hve óraunhæfar kröfurnar eru. Stemmningin hjá verkalýðshreyfingunni virðist vera sú að fyrirtækið skuli bara samþykkja kjarakröfur flugfreyja þó ljóst megi vera að félagið lifi þá ekki af í samkeppni við keppinauta sína. Ætlar verkalýðshreyfingin að borga það sem upp á vantar ?


mbl.is Reynt að „reka fleyg í samstöðu félagsmanna“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afarkostir FFÍ dekurprinsessa.

Sé Icelandair aðeins heimilt að leita samninga við eitt stéttarfélag í grein liggur ljóst fyrir að FFí gefur ekkert eftir af óraunhæfum kröfum sínum. Icelandair á þá tvo möguleika sem er að fara í gjaldþrot strax með samningi við FFÍ eða að fara í gjaldþrot strax án samnings við FFÍ. Sama niðurstaða verður þó fyrir FFÍ sem breytist í saumaklúbb dekurprinsessa sem eiga það sameiginlegt að verða atvinnulausar. Nema ríkið ætli að dekra við þær og borga með rekstri Icelandair um ókomna framtíð svo þær geti notið kjara langt umfram starfsmenn annarra flugfélaga í samkeppni við Icelandair. Í viðskiptum eiga aðilar ávallt þann kost að semja við fleiri en einn aðila, því skyldi ekki gilda það sama í þessum efnum ?


mbl.is Ekki í viðræðum við önnur stéttarfélög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Banna skylduaðild.

Þrátt fyrir félagafrelsi í orði þá er launamönnum í raun þröngvað til aðildar að stéttarfélögum. Þessu verður að breyta og lögfesta að skylduaðild að hvers kyns félögum sé bönnuð með lögum. Einstök stéttarfélaog hafa rekstur sumra fyrirtækja í hendi sér vegna forgangsréttarákvæða þar sem annað hvort verður að semja við viðkomandi stéttarfélag eða fara á hausinn ella. Flugfreyjufélaðið ræður nú örlögum Icelandair því enginn með fullu viti setur sitt eigið fé í fyrirtækið án breytinga á kjarasamningum. Öðru máli gangir með ríkið þar sem þar er fólk örlátara á fé í gæluverkefni þar sem þeir fjármunir eru ekki þeirra eigin. Örlæti á eigið fé og annarra fé er sitthvort.


mbl.is Semji við nýtt félag flugfreyja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 20. maí 2020

Um bloggið

Örn Gunnlaugsson

Höfundur

Örn Gunnlaugsson
Örn Gunnlaugsson

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...p1011234

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.6.): 15
  • Sl. sólarhring: 32
  • Sl. viku: 128
  • Frá upphafi: 130900

Annað

  • Innlit í dag: 13
  • Innlit sl. viku: 106
  • Gestir í dag: 13
  • IP-tölur í dag: 13

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband