Hefst á vinnustað.

Hjá okkur, óbreyttum almúganum stimplum við okkur inn þegar við mætum til vinnu og erum klárir til að starfa fyrir okkar vinnuveitanda. En prinsessurnar vilja telja öðruvísi. þær telja flugstundir sem enginn venjulegur maður veit hvað þýðir. Flugfreyjur eiga bara að fá greitt frá þeim tíma sem þeim er gert að mæta um borð í flugförin á Keflavík og þar til þær yfirgefa flugfarið. Gisti þær yfir nótt í útlöndum fá þær ekki borgað fyrir að sofa þar frekar en aðrir sem eru í störfum sem kalla á fjarveru. En prinsessurnar halda að þær séu skör ofar settar öðrum. Fá sokkabuxna og skóálag, tollfríðindi, skattsvikna dagpeninga og endalaust af einhverju öðru sem engum hefur dottið í hug að væri hægt að búa til orðskrípi yfir. Látum Icelandair fara í þrot. Svo verður til annað flugfélag sem býður mun lakari kjör en samt verða þúsundir sem sækja um en ekki fá starf.


Hefst vinnan heima ?

Það virðist alls ekki mega gefa upp ýmislegt varðandi innihald samningsins. Td. byrjar vinnudagur flestra að telja þegar þeir hefja vinnu á vinnustað en ekki þegar þeir byrja að mála sig og greiða heima. Þá njóta fæstir launamenn landsins dagpeningagreiðslna sem sviknar eru undan tekjuskatti með samþykki stjórnvalda. Flugfreyjur hjá Icelandair njóta hins vegar slíkra dagpeninga og greiða ekki tekjuskatt af því hvort sem þeim er varið til greiðslu ferðakostnaðar eður ei þrátt fyrir að lögin kveði skýrt á um hver skilyrði fyrir skattleysinu er og slíkt skattleysi á ekki við í tilfelli flugliða. Ég hef fengið upplýsingar um að 550 stundir hjá þeim teljist fullt ársstarf en hjá venjulegum launamanni er fullt ársstarf rétt um 1800 stundir. Gott ef flugfreyjur leiðréttu þetta ef rangt er farið með.


mbl.is 20% aukið vinnuframlag á móti 12% launahækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 21. maí 2020

Um bloggið

Örn Gunnlaugsson

Höfundur

Örn Gunnlaugsson
Örn Gunnlaugsson

Færsluflokkar

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...p1011234

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.6.): 15
  • Sl. sólarhring: 30
  • Sl. viku: 128
  • Frá upphafi: 130900

Annað

  • Innlit í dag: 13
  • Innlit sl. viku: 106
  • Gestir í dag: 13
  • IP-tölur í dag: 13

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband