Þjófnaðurinn regla en ekki undantekning.

Gott dæmi um hvernig þessu er almennt farið. Þar sem um dánarbú er hér að ræða liggur nokkuð ljóst fyrir strax í upphafi hverjar eignir búsins eru og að kanna fjárhag hjá fjármálastofnunum útheimtir sáralitla vinnu sem talin er í mesta lagi í klukkustundum. Þrátt fyrir að hér sé um að ræða opinber skipti þá er ekki um að ræða ósvipaðan framgangsmáta og ef um einkaskipti hefði verið að ræða. Erfingjar sem fengið hafa leyfi til einkaskipta þekkja það að skiptakostnaður af þeirri upphæð sem hér er vísað í er hrein fásinna. Skiptastjóri þessa bús getur ekki hafa verið með hundsvit á þessum málum og hlýtur því að hafa rukkað tímagjald fyrir að mennta sig í að fást við svona hluti, kannski allt laganámið. Vinir skiptastjórans í Héraðsdómi koma svo í veg fyrir að þjófnaður skiptastjórans sé upprættur. Það er almennt á færi leikskólakrakka að skipta dánarbúi. Þegar um þrotabú er að ræða er lögð fram trygging fyrir lágmarksskiptakostnaði sem er í kringum 500.000 ef ég man rétt. Almenna reglan er sú að sjái þeir lögmenn sem fá slík bú til skipta ekki að eftir neinu sé að slægjast þá ljúka þeir skiptum án þess að skoða hlutina frekar. Á hinn bóginn virðast þeir almennt vera duglegir að smyrja tíma á skoðun búa þar sem peningalykt er og oft á tíðum lýkur skiptum þannig að ekkert fæst upp í neinar kröfur þegar búið er að greiða skiptakostað sem er í forgangi. Hafa verður í huga að þeir sem sitja í dómstólum landsins eru af sama sauðahúsi og lögmennirnir sem skipaðir eru skiptastjórar og oft eru þetta fyrrum (skóla)félagar með jafnvel enn nánari tengsl. Í þessu sambandi sem og svo mörgum sviðum í efri lögum íslensks samfélags er kerfið gegnumrotið og gjörspillt. Það verður fróðlegt að fylgjast með hvað skiptastjórar WOW hirða til sín þegar þeim leik er lokið. Kannski rétt að reikna vinnu þessarra aðila á einföldum Eflingartaxta en ekki fimmtíuföldum! Það hefur sýnt sig og sannað að þjófarnir sitja einnig í dómstólum landsins og þar eru stórþjófarnir.


mbl.is Tók stóran hluta búsins í þóknun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

"Löglegt" okur!!!!!

Tómas Ibsen Halldórsson, 9.5.2019 kl. 11:13

2 Smámynd: Hörður Einarsson

nafngreina skiptaráðanda

Hörður Einarsson, 9.5.2019 kl. 14:39

3 Smámynd: Örn Gunnlaugsson

Það skiptir þennan glæpalýð engu máli þó þeir séu nafngreindir því þeir eru skipaðir án þess að þeir sem kröfur eiga í búið (í þessu tilfelli erfingjar) geti haft nokkur áhrif þar á. En auðvitað á að nafngreina þennan glæpalýð og einnig birta myndir af þeim frá sem flestum sjónarhornum. Þá þarf líka að nafngreina og myndbirta þá sem í Héraðsdómi höfnuðu því að taka málið til rannsóknar. Þetta er arfagalið kerfi og sýnir hina gríðarlegu spillingu á Íslandi í hnotskurn. Þeir sem tróna á toppnum sitja í dómstólum landsins og strjuka svo kolleggum sínum eftir því hve nánir þeir eru þeim.

Örn Gunnlaugsson, 9.5.2019 kl. 15:47

4 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Svo sitja kolleikar þessa glæpalýðs löggjafasamkuntuna og framleiða lögin fyrir dómstólana.

Sammála; "Þetta er arfagalið kerfi og sýnir hina gríðarlegu spillingu á Íslandi í hnotskurn."

Magnús Sigurðsson, 10.5.2019 kl. 15:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Örn Gunnlaugsson

Höfundur

Örn Gunnlaugsson
Örn Gunnlaugsson

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...p1011234

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 497
  • Frá upphafi: 116343

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 398
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband