2.1.2020 | 13:09
Hringtorgin enn í lausu lofti.
Ekki lánaðist þessum snillingum samt að koma inn skýrum ákvæðum varðandi hringtorgin. Kveðið er á um að innri hringur eigi réttinn fyrir ytri hring. Hins vegar er einnig kveðið á um að sá sem fer í innri hring skuli fara fram hjá amk fyrsta útakstri í hringtorgi. Hins vegar er ekkert kveðið á um hrvers rétturinn er í raun. Tryggingafélögin hafa hingað til dæmt 1/3 bótaskyldu hjá þeim sem fer úr innri hring eftir fyrsta útakstur og 2/3 hjá þeim sem er í ytri hring annars vegar en 2/3 hjá þeim sem fer úr innri hring í fyrsta útakstri og 1/3 hjá ytri hring. Hvers vegna geta allir þessir lögfræðingar sem við erum með á þingi ekki komið þessu skýrt inn í lögin þannig að ljóst sé hver er í rétti og hver ekki ? Og hvers vegna á sá sem réttinn á ekki að njótahans til fulls? Það eru margar ljóskurnar (og ljóskarnir) í umferðinni sem ekki eiga að vera þar. Hringtorg sem tengir Smiðjuveg og Stekkjarbakka eru td. upplagt hringtorg til að losa sig við bíl með aðeins 1/3 bótaskyldu (ðurfi maður að losna við notaðan bíl). Langflestir fara inn á í innri hring frá Smiðjuvegi og strax út á Stekkjarbakka.
Lögregla minnir á nýju umferðarlögin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Örn Gunnlaugsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 61
- Sl. sólarhring: 142
- Sl. viku: 173
- Frá upphafi: 125377
Annað
- Innlit í dag: 52
- Innlit sl. viku: 135
- Gestir í dag: 51
- IP-tölur í dag: 51
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þetta er alls ekkert í "lausu lofti":
77/2019: Umferðarlög - 6. mgr. 19. gr.
Ökumaður sem ekur að hringtorgi skal veita þeim sem eru í torginu forgang. Í hringtorgi sem skipt er í tvær akreinar skal ökumaður velja hægri akrein, ytri hring, ætli hann að aka út úr hringtorginu á fyrstu gatnamótum. Ökumaður á ytri hring skal veita þeim sem ekur á innri hring forgang út úr torginu. Óheimilt er að skipta um akrein við hringtorg eða á milli ytri og innri hrings í hringtorgi.
Guðmundur Ásgeirsson, 2.1.2020 kl. 13:57
Tengingin við Smiðjuvegarhringtorgið er meingölluð. Eðlilega aka menn í innri hring frá Stekkjarbakka, því umferðin frá Reykjanesbrautarafleggjaranum kemur inn í ytri hring ætli menn á Smiðjuveg. Svo vandast málið þegar að Smiðjuveginum er komið því þar er aðeins ein akrein. Þar víkur innri akreinin fyrir hinni.
Kolbrún Hilmars, 2.1.2020 kl. 14:34
Innri akreinin víkur ekki heldur breytist hún í beygjurein eftir að komið er út úr umræddu hringtorgi á mótum Stekkjarbakka og Smiðjuvegar: Kort - Já.is
Guðmundur Ásgeirsson, 2.1.2020 kl. 14:42
Alveg rétt, og þar er pláss fyrir ca 2 bíla sem stoppa svo innri akreinina, því strax þar til vinstri (fyrir framan) er innkeyrsla í fyrstu Smiðjuvegargötuna. Klúður.
Kolbrún Hilmars, 2.1.2020 kl. 15:36
Guðmundur. Mér hefur yfirsést þetta með ytri hring og fyrstu gatnamót, takk fyrir ábendinguna. Ég er hins vegar enn í óvissu með hvernig málin verða afgreidd hjá tryggingafélögunum eftir að þetta kemur inn í lögin. Og svo þarf að kenna fjölda fólks að aka í hringtorgi. Mörg hringtorg eins og við Smiðjuveg/Stekkjabakka. Þar hefur sennilega engin breyting orðið. Ég er að tala um þá sem koma frá Smiðjuvegi inn í hringtorgið og út í Stekkjarbakka, en ekki inn frá Stekkjarbakka.
Örn Gunnlaugsson, 2.1.2020 kl. 15:41
Einfaldasta leiðin varðandi hringtorg er að banna þau með öllu. Þetta er tímaskekkja sem á að vera aflögð fyrir löngu.
Það eru allar aðrar leiðir varðandi gatnamót betri og ekki vantar fjölbreytileikann í slík mannvirki.
Gunnar Heiðarsson, 2.1.2020 kl. 19:51
Fyrsta spurningin hér er reyndar sú hvað hringtorg er. Það þarf að skilgreina með lögum því eins og við sáum í haust virðast sumir, sér í lagi vissir starfsmenn borgarinnar, haldnir mjög yfirgripsmiklum misskilningi um þetta efni. En að þessu frátöldu finnst mér lögin alveg skýr.
Þorsteinn Siglaugsson, 3.1.2020 kl. 10:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.