30.6.2021 | 09:11
Menntun og skilningur.
Með hækkandi menntunarstigi landans virðist ekki fylgja aukinn skilningur eða hæfni. Þvert á móti er almennt hröð hnignun í hæfni og getu fólks, jafnvel þótt fólk sitji á skólabekk langleiðina fram að andláti. Sumir héldu og halda enn að Nýbýlavegurinn heiti í raun Nýbílavegur eftir nýjum bílum sem seldir voru meðan bílaumboðin voru nokkur við götuna. Svo telja einhverjir að álfar hafi átt heima í hólfi við Álfhólsveg og kalla hann Álfhólfsveg. Borgin strögglast enn við að kalla götu í vesturbænum Eiðsgranda og ber fyrir sig fornmál sem ekki er brúkað lengur. Gatan sú dregur nafn sitt af bænum Eiði sem stóð á bæjarmörkum Seltjarnarness og Reykjavíkur. Rétt beyging samkvæmt nútíma ritreglum er Eiðisgrandi en ekki Eiðsgrandi. Núverandi skilti götunnar gefur til kynna að hún sé kennd við einhvern Eið og hvaða Eiður skyldi það nú vera ? Er ekki alveg við hæfi að spara breytinguna á skiltinu við Grensásveg og kalla götuna bara eftir Grensári, eða bara Gamlári. Ég átta mig reyndar ekki á hvað grensár gæti helst verið, kannski sár á greni ?
![]() |
Óvelkomið R rataði óvænt inn á Grensásveg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Örn Gunnlaugsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.5.): 6
- Sl. sólarhring: 13
- Sl. viku: 300
- Frá upphafi: 129904
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 243
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Grensár getur var verið annað en aldamótaárið því það hlýtur að hafa verið aldamótabarn á vaktinni í skiltagerðinni þennan dag. ;)
Guðmundur Ásgeirsson, 30.6.2021 kl. 14:34
Það er nú hæpið, Guðmundur að kenna krakkanum á gólfinu um þetta klúður. Hefur örugglega farið milli fjölda sprenglærðra hjá borginni áður en þetta endaði hjá þeim sem bjó skiltið til. Að þetta hafi sloppið svona í gegn og alveg upp á staurinn án þess að nokkur gæfi þessu gaum sýnir í hnotskurn hvernig hlutirnir eru orðnir. Viðvarandi páfagaukalærdómur og allir hlutir meira og minna framkvæmdir hugsunalaust.
Örn Gunnlaugsson, 30.6.2021 kl. 18:11
Þetta var nú meira í gríni, en kannski var þá aldamótabarn á vakt hjá borginni ef það var þar sem þetta gerðist, fremur en í skiltagerðinni. :)
Guðmundur Ásgeirsson, 30.6.2021 kl. 18:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.