28.5.2020 | 12:01
Birtingamynd hrokans.
Þar birtist hroki hennar enn og aftur. Felur sig bak við hurð og tjáir sig ekki. Einfaldara getur það ekki verið.
![]() |
Svandís tjáir sig ekki í bili |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.5.2020 | 11:48
Togga Kínatvífari......
og Kimdís, eru þær að spila með bjarna ?
![]() |
Kári þurfi bara að breyta einni stillingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.5.2020 | 10:13
Skattgreiðendur blæða.
Nú eiga skattgreiðendur að taka við keflinu. Það er algjört lágmark að gegn þeirri gölnu aðstoð sem stjórnvöld hafa samþykkt að dekra ferðaþjónustufyrirtækin ( og önnur) til fái ríkið hlutabréf á móti í þeim fyrirtækjum sem nýta sér aðstoð skattgreiðenda. Hlutabréf þessi gætu svo fyrirtækin haft forkaupsrétt að í takmarkaðan tíma en annars yrðu þau boðin almenningi til sölu. Stjórnvöld eru hreint út sagt galin að gefa peninga sem ekki eru til eins og nú er verið að gera en það hefur sjaldan þvælst fyrir að gefa annarra manna fé. Fimmþúsundkallinn sem nú hefur verið skilyrtur ferðaþjónustufyrirtækjum er dæmigerður fyrir þá stjórn sem nú situr, þar sem sá sem borgar brúsann er líka þiggjandi en á sama tíma skikkaður til að leggja gjöfina inn hjá ferðaþjónustunni. Dekrið við ferðaþjónustuna ríður ekki við einteyming.
![]() |
Bláa lónið segir upp 403 starfsmönnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.5.2020 | 14:11
Ríkur samningsvilji ?
Að því gefnu að samningsaðilinn samþykki þeirra kröfur, jafnvel þó þær leiði til þess að fyrirtækið verði ekki samkeppnisfært að þeim kröfum gengnum. Nú hljóta þessir aðilar hvorir um sig að hafa frelsi til að ganga frá borði og semja við þá sem þeim hugnast þar sem ekki virðist lengra komist í samtali FFÍ og Icelandair. Ef ég fer og kaupi þjónustu eða vöru þá hef ég frelsi til að semja við þann sem mér hugnast að því gefnu að hann sé með sinn rekstur löglegan. Það er til annað fullgilt stéttarfélag flugliða sem Icelandair hlýtur að mega semja við hugnist þeim það frekar. Á sama hátt hlýtur FFÍ að hafa frelsi til að semja við þau flugfélög sem kunna að verða stofnuð hér hugnist þeim aðilum það á annað borð. Eiga skattgreiðendur að greiða það sem upp á vantar til að FFÍ fái kröfum sínum framgengt og fyrirtækið verði á sama tíma samkeppnisfært ? Er ekki nóg að þessu fólki sé rétt sú dúsa að fá óáreitt að svíkja tekjuskatt undan þeim hluta launa sem greidd eru í formi tilhæfulausra dagpeninga ?
![]() |
Það er ekkert að frétta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.5.2020 | 10:35
Úrslitin eru í raun ráðin.
Meðan staðan er þannig að ekki er hægt að gera félagið samkeppnisfært vegna þess hreðjataks sem flugreyjur hafa á félaginu þá eru úrslitin í raun ráðin. Enginn maður með fullu viti mun setja eigið fé í hvorki þennan rekstur né annan meðan ljóst er að hann á ekki möguleika á að keppa við samkeppnisaðilana. Hjá lífeyrissjóðunum liggur mikið fé án hirða en þeir sem ráðskast með lífeyrinn þurfa ekki að taka afleiðingunum af því að tapa fjármununm þar sem þeir eru ekki þeirra eigin. Verkalýðsforingjar virðast styðja það að hent verði peningum lífeyrisþega í þessa botnlausu hít. Fleira fé er til án hirðis og þeim fjármunum (sem reyndar eru ekki til) stjórnar hjörð á Austurvelli. Nú er verið að gefa peninga þar sem aldrei fyrr (sem reyndar eru ekki til) og ekki ólíklegt að eitthvað muni verða látið rakna til að halda uppi óraunhæfum kjörum flugfreyja. Þar er enginn sem ber ábyrgð á að peningum skattgreiðenda sé hent í vitleysu.
![]() |
Úrslitin ráðast ekki í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.5.2020 | 20:59
Hefst á vinnustað.
Hjá okkur, óbreyttum almúganum stimplum við okkur inn þegar við mætum til vinnu og erum klárir til að starfa fyrir okkar vinnuveitanda. En prinsessurnar vilja telja öðruvísi. þær telja flugstundir sem enginn venjulegur maður veit hvað þýðir. Flugfreyjur eiga bara að fá greitt frá þeim tíma sem þeim er gert að mæta um borð í flugförin á Keflavík og þar til þær yfirgefa flugfarið. Gisti þær yfir nótt í útlöndum fá þær ekki borgað fyrir að sofa þar frekar en aðrir sem eru í störfum sem kalla á fjarveru. En prinsessurnar halda að þær séu skör ofar settar öðrum. Fá sokkabuxna og skóálag, tollfríðindi, skattsvikna dagpeninga og endalaust af einhverju öðru sem engum hefur dottið í hug að væri hægt að búa til orðskrípi yfir. Látum Icelandair fara í þrot. Svo verður til annað flugfélag sem býður mun lakari kjör en samt verða þúsundir sem sækja um en ekki fá starf.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
21.5.2020 | 18:08
Hefst vinnan heima ?
Það virðist alls ekki mega gefa upp ýmislegt varðandi innihald samningsins. Td. byrjar vinnudagur flestra að telja þegar þeir hefja vinnu á vinnustað en ekki þegar þeir byrja að mála sig og greiða heima. Þá njóta fæstir launamenn landsins dagpeningagreiðslna sem sviknar eru undan tekjuskatti með samþykki stjórnvalda. Flugfreyjur hjá Icelandair njóta hins vegar slíkra dagpeninga og greiða ekki tekjuskatt af því hvort sem þeim er varið til greiðslu ferðakostnaðar eður ei þrátt fyrir að lögin kveði skýrt á um hver skilyrði fyrir skattleysinu er og slíkt skattleysi á ekki við í tilfelli flugliða. Ég hef fengið upplýsingar um að 550 stundir hjá þeim teljist fullt ársstarf en hjá venjulegum launamanni er fullt ársstarf rétt um 1800 stundir. Gott ef flugfreyjur leiðréttu þetta ef rangt er farið með.
![]() |
20% aukið vinnuframlag á móti 12% launahækkun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.5.2020 | 13:38
Verkalýðshreyfingin taki reksturinn yfir.
Er ekki bara rétt að verkalýðshreyfingin taki rekstur Icelandair yfir og semji svo við sjálfa sig um kaup og kjör? Það virðist ekki þurfa að taka tillit til samkeppnishæfni hjá þeim. Lífeyrissjóðina ætti að leggja hreinlega niður enda kemur bersýnilega í ljós hvernig þetta er allt farið í bíta í skottið á sér. Greiðslur í lífeyrissjóði í dag er hrein og klár skattlagning þar sem útgreiðslur skerða framlög frá TR á móti, nokkuð sem þegnarnir hafa áunnið sér sem skattgreiðendur í landinu á búsetutíma.
![]() |
Meta þurfi stöðu æðstu stjórnenda Icelandair |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.5.2020 | 13:20
Ætlar verkalýðshreyfingin að borga það sem upp á vantar ?
Siggi smiður og Gummi smiður komu hvor með sitt tilboðið til mín. Er mér þá ekki frjálst að semja við hvorn þann sem mér sýnist og væntanlega þann sem er mér hagstæðari? Icelandair og önnur fyrirtæki skulu samt bundin af því að semja aðeins við einn aðila sama hve óraunhæfar kröfurnar eru. Stemmningin hjá verkalýðshreyfingunni virðist vera sú að fyrirtækið skuli bara samþykkja kjarakröfur flugfreyja þó ljóst megi vera að félagið lifi þá ekki af í samkeppni við keppinauta sína. Ætlar verkalýðshreyfingin að borga það sem upp á vantar ?
![]() |
Reynt að reka fleyg í samstöðu félagsmanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.5.2020 | 12:03
Afarkostir FFÍ dekurprinsessa.
Sé Icelandair aðeins heimilt að leita samninga við eitt stéttarfélag í grein liggur ljóst fyrir að FFí gefur ekkert eftir af óraunhæfum kröfum sínum. Icelandair á þá tvo möguleika sem er að fara í gjaldþrot strax með samningi við FFÍ eða að fara í gjaldþrot strax án samnings við FFÍ. Sama niðurstaða verður þó fyrir FFÍ sem breytist í saumaklúbb dekurprinsessa sem eiga það sameiginlegt að verða atvinnulausar. Nema ríkið ætli að dekra við þær og borga með rekstri Icelandair um ókomna framtíð svo þær geti notið kjara langt umfram starfsmenn annarra flugfélaga í samkeppni við Icelandair. Í viðskiptum eiga aðilar ávallt þann kost að semja við fleiri en einn aðila, því skyldi ekki gilda það sama í þessum efnum ?
![]() |
Ekki í viðræðum við önnur stéttarfélög |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Örn Gunnlaugsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.6.): 15
- Sl. sólarhring: 16
- Sl. viku: 128
- Frá upphafi: 130900
Annað
- Innlit í dag: 13
- Innlit sl. viku: 106
- Gestir í dag: 13
- IP-tölur í dag: 13
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar